Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2025 13:54 Daníel hefur þjálfað bæði karla- og kvennalið Grindavíkur og Njarðvíkur. Nú tekur hann við sem aðalþjálfari karlaliðs Keflavíkur. keflavík karfa Daníel Guðni Guðmundsson hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Keflavíkur og verður þjálfari karlaliðsins næstu tvö árin. „
Daníel hefur verið viðloðandi þjálfun í meira en 20 ár þó ungur sé hann að árum og hefur víððtæka reynslu sem mun nýtast vel í starfi hér í Keflavík. Vinna er í fullum gangi í leikmannamálum og ekki hægt að útiloka að einhverjar fréttir berist í þeim málum innan skamms“ segir í tilkynningu Keflavíkur á Facebook. Daníel er fæddur árið 1986 og hóf þjálfaraferilinn árið 2015 með kvennaliði Grindavíkur, sem hann stýrði í úrslitaleik bikarkeppninnar gegn Snæfelli og undanúrslit úrvalsdeildarinnar gegn Haukum. Árið 2016 var hann ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Njarðvíkur, náði ekki inn í úrslitakeppnina á sínu fyrsta tímabili, var síðan sópað burt af KR í fyrstu umferð á næsta tímabili, og lét af störfum í kjölfarið, árið 2018. Daníel á hliðarlínunni í leik Grindavíkur og Fjölnis tímabilið 2019-20. vísir Tímabilið eftir sinnti hann aðstoðarþjálfarastörfum hjá karla- og kvennaliðum Grindavíkur. Hann var síðan ráðinn aðalþjálfari Grindavíkur árið 2019, leiddi liðið í bikarúrslitaleik árið 2020, en látinn fara þegar fimm leikir voru eftir af tímabilinu 2022. Daníel ræðir við Njarðvíkinga í leikhléi árið 2023. vísir Þá gerðist hann aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, sem spilaði undir stjórn Benedikts Guðmundssonar. Þeir létu báðir af störfum í fyrra, eftir að Njarðvík datt út í úrslitakeppninni 2024. Daníel er menntaður íþróttasálfræðingur með meistaragráðu frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð og hefur undanfarin fjögur ár starfað hjá Sidekick Health í Kópavogi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bónus-deild karla Keflavík ÍF Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira