Chelsea Sambandsdeildarmeistari 2025 Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. maí 2025 18:30 Meistarar. Getty Images Enska knattspyrnufélagið Chelsea hafði betur gegn Real Betis frá Spáni í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Spánverjarnir komust yfir en bláliðar frá Lundúnum svöruðu með þremur mörkum og unnu á endanum 4-1 sigur. Það voru aðeins níu mínútur á klukkunni þegar Abde Ezzalzouli kom Real Betis eftir undirbúning hins síunga Isco. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiksins. Abde kom Betis yfir.EPA-EFE/Jakub Kaczmarczyk Framan af síðari hálfleik gekk lítið upp hjá bláklæddum Chelsea-mönnum en það breyttist allt eftir að Levi Colwill og Jadon Sancho komu inn af bekknum. Það var hins vegar fyrirliðinn Enzo Fernández sem steig upp og jafnaði metin eftir undirbúning Cole Palmer á 65. mínútu leiksins. Fyrirliðinn hóf endurkomuna.EPA-EFE/Jakub Kaczmarczyk Fimm mínútum síðar var Chelsea komið yfir. Nú gaf Palmer fyrir og Nicolas Jackson skilaði boltanum í netið í fyrstu snertingu. Varamaðurinn Sancho sneri boltann svo í fjærhornið á 83. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Kiernan Dewsbury-Hall. Um var að ræða fyrsta mark Sancho í 8 leikjum í Sambandsdeildinni.PA-EFE/Pawel Jaskolka Til að fullkomna endurkomuna skoraði Moisés Caicedo með fínu skoti eftir sendingu frá Enzo þegar uppbótatími var nýhafinn. Staðan orðin 4-1 Chelsea í vil og reyndust það lokatölur. Það er því Chelsea sem er Sambandsdeildarmeistari árið 2025. Sambandsdeild Evrópu Fótbolti