Fótbolti

Svona var blaða­manna­fundur Ís­lands fyrir Frakklandsleikinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir og Þorsteinn Halldórsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundinum.
Glódís Perla Viggósdóttir og Þorsteinn Halldórsson sitja fyrir svörum á blaðamannafundinum. vísir

Ísland mætir Frakklandi á Laugardalsvelli á morgun í lokaleik riðlakeppni Þjóðadeildarinnar. Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi degi fyrir leik.

Fundurinn var  haldinn í höfuðstöðvum KSÍ og má sjá upptöku af fundinum hér fyrir neðan.

Klippa: Blaðamannafundur KSÍ

Ísland gerði 1-1 jafntefli við Noreg síðasta föstudag og situr í þriðja sæti riðilsins í Þjóðadeildinni eins og er. Til að lyfta sér upp úr þriðja sætinu og sleppa við umspil þarf Ísland að vinna Frakkland og treysta á að Noregur tapi stigum í heimsókn sinni til Sviss. Leikurinn gegn Frakklandi verður sá fyrsti á nýju grasi Laugardalsvallar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×