Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Kári Mímisson skrifar 2. júní 2025 21:00 Patrick Pedersen er kominn með níu mörk í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Anton Valur tók á móti Fram í lokaleik 10. umferðar Bestu deildar karla nú í kvöld. Sannkallaður Reykjavíkurslagur sem endaði með 2-1 sigri Vals sem skella sér í þriðja sætið með sigrinum og eru nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Víkings. Leikurinn fór hægt af stað hér á Hlíðarenda en það var fátt um fína drætti í fyrri hálfleiknum. Hættulegast færi hálfleiksins kom eftir rétt rúmlega hálftíma leik þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson slapp í gegn eftir frábæra sendingu frá Aroni Jóhannssyni en Kyle McLagan átti meistaralega tæklingu og tókst að stöðva Tryggva á síðustu stundu. Skömmu áður en flautað var til hálfleiks fengu svo Fram fínasta tækifæri til að komast yfir þegar Vuk Oskar Dimitrijevic átti gott skot sem sleikti stöngina áður en boltinn fór framhjá. Staðan í hálfleik 0-0. Það dró heldur betur til tíðinda snemma í seinni hálfleik. Patrick Pedersen kom heimamönnum yfir þegar aðeins fimm mínútur voru liðnar af hálfleiknum eftir mistök hjá Kennie Chopart. Kennie virtist stíga á boltann og Bjarni Mark Antonsson var fljótur að átta sig, þræddi boltann beint inn fyrir vörn Fram á Patrick sem afgreiddi boltann laglega í netið. Þetta var níunda mark hans á tímabilinu mark númer 125 hjá honum í efstu deild en nú eru aðeins sex mörk í met Tryggva Guðmundssonar. Fram tókst þó að jafn leikinn og það gerði Vuk Oskar Dimitrijevic með glæsilegu skoti fyrir utan teig. Israel Moreno vann boltann á góðum stað og æddi að marki Vals þar sem hann fann Vuk sem afgreiddi boltann laglega í bláhornið, óverjandi fyrir Frederik Schram í marki Vals. En aðeins örfáum mínútum síðar fengu Framarar aukaspyrnu sem endað í höndum Frederiks sem sá sér leik á borði og lúðraði knettinum beint fram þar sem hann skopað nokkrum sinnum áður en Óliver Elís Hlynsson reyndi að skalla hann til baka á Viktor Frey markmann Fram. Því miður fyrir Óliver þá náði hann ekki að hitta boltann og Tryggvi Hrafn Haraldsson komst inn á milli og vippaði boltanum laglega yfir Viktor. Meira markvert gerðist ekki í kvöld og heimamenn lönduðu því sínum þriðja sigri í röð í kvöld. Atvik leiksins Það verður að vera þetta sigurmark Vals. Frederik var fljótur að átta sig á því að Tryggvi væri einn gegn Óliver og neglir boltanum bara fram strax og hann var búinn að handsama knöttinn. Auðvitað gerir Óliver mistök þarna í aðdragandanum en Tryggvi var vel vakandi og afgreiddi þetta listavel. Stjörnur og skúrkar Aron Jóhannsson var frábær á miðju Vals í dag stýrði spilinu virkilega vel við þessar erfiðu aðstæður sem voru í dag. Hann fær því að vera maður leiksins. Þá verð ég að hrósa Frederik í marki Vals líka. Það dundi vissulega ekki mikið á honum í dag en stoðsending frá markmanni er eitthvað sem maður gefur extra stig fyrir. Óliver Elís átti því miður sannkallaða martraða byrjun í Bestu deildinni en hann var ekki búinn að vera lengi á vellinum þegar hann gerir þessi afdrifaríku mistök sem leiða til sigurmarks Vals. Þá gerði reynsluboltinn Kennie Chopart sig líka sekan um dýr mistök í fyrra marki Vals. Dómarinn Þórður hélt fast um flautuna í dag og gerði virkilega vel sem og hans aðstoðarmenn. Ekki neitt um stór atvik en þeir félagar ganga stoltir frá þessu í dag. Stemning og umgjörð Það var bara fín mæting á Hlíðarenda í dag jafnvel þótt veðrið hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Valsmenn byrjaðir að svara kallinu eftir slæma mætingu í úrslitaeinvíginu í handboltanum. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, á hliðarlínunni.Vísir/Viktor Freyr Rúnar: Ég er drullufúll með það Rúnar Kristinsson var skiljanlega ekki ánægður þegar hann mætti í viðtal strax að leik loknum. Hann segist tapið vera svekkjandi sérstaklega í ljósi þess hvernig hans menn gjörsamlega gáfu Val tvö mörk hér í kvöld. „Ég er ógeðslega fúll með að tapa þessum leik því ég hefði alveg sætt mig við það að tapp ef að Valur hefði spilað okkur sundur og saman og skapað sér eitthvað af færum en þeir bara gerðu það ekki í dag. Við vörðumst ofboðslega vel og náðum fullt af góðum upphlaupum. Við stelum boltanum af þeim í fyrri hálfleik sem við gerum ekki nógu vel úr og förum illa með færin okkar. Svo gefum við þeim tvö mörk og eins og ég segi þá á ég erfitt með að sætta mig við tapið og hefði frekar viljað sjá þá spila okkur sundur og saman og skora tvö mörk heldur en að við myndum gefa þeim tvö mörk á silfurfati.“ Fram situr nú í 8. sæti með tólf stig. Spurður út í það hversu ánægður Rúnar sé með það er svarið stutt og skýrt. „Ég er drullufúll með það!“ Kristinn Freyr SigurðssonVísir/Anton Kristinn Freyr: Langt síðan held ég að við höfum náð þremur sigurleikjum í röð Kristinn Freyr Sigurðsson var mættur aftur í byrjunarlið Vals en hann hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu. Kristinn segist vera ánægður með sigurinn og að hann og sitt lið hafi sýnt fagmannlega frammistöðu hér í kvöld. „Mér fannst við góðir og gerðum þetta mjög fagmannlega. Það voru náttúrulega erfiðar aðstæður, mikill vindur og mér fannst við gera þetta mjög vel í fyrri hálfleik á móti vindi, Framararnir náðu ekki að skapa sér mikið og við vörðumst þeim fagmannlega og klárum leikinn í seinni hálfleik.“ En hvernig er staðan á Kristni sjálfum? „Ég er að komast í stand og er búinn að ná að tengja tvær æfingarvikur sem er frábært. Ég hlakka bara til að hjálpa liðinu að ná árangri í sumar. Vonandi geta þessir sem eru fyrir utan hóp komið til baka og hjálpað okkur og við getum nýtt landsleikjafríið í að fá þá til baka og verið sterkari eftir fríið. Það er búið að vera mikið leikjaálag og það verður helvíti gott að anda aðeins, endurstilla sig og gera sig til í bátana.“ Spurður út í það hversu mikilvægur þessi sigur hafi verið í kvöld segir Kristinn hann hafa verið mjög mikilvægan. Liðið sé á góðri siglingu og núna þurfi það að halda áfram að berja á járnið á meðan það er heitt. „Fyrir okkur er þetta mjög mikilvægur sigur. Þrír sigurleikir í röð núna og vonandi náum við að byggja upp eitthvað mómentum sem að getur hjálpað okkur í framhaldinu að berjast á toppnum. Við erum samt eiginlega bara í þannig stöðu að við þurfum bara að taka einn leik í einu og það þýðir ekkert að horfa of mikið í töfluna heldur þurfum við bara að einbeita okkur að hverjum leik. Við erum bara þannig að við getum unnið alla og á sama tíma getum við tapað fyrir öllum ef að við erum ekki einbeittir. Það er langt síðan held ég að við höfum náð þremur sigurleikjum í röð sem er kærkomið og nú höldum við áfram að byggja ofan á það og safna stigum.“ Besta deild karla Íslenski boltinn Valur Fram