Upp­gjörið: ÍA - ÍBV 0-3 | Eyja­menn fara með tvo sigurleiki á bakinu inn í hléið

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sverrir Páll Hjaltested og Alex Freyr Hilmarsson skoruðu mörk Eyjamanna í leiknum. 
Sverrir Páll Hjaltested og Alex Freyr Hilmarsson skoruðu mörk Eyjamanna í leiknum.  Vísir/Hulda Margrét

ÍBV vann sannfærandi 3-0 sigur þegar liðið sótti ÍA heim á Elkem-völlinn á Akranes í tíundu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Sverrir Páll Hjaltested skoraði tvö marka Eyjaliðsins sem hefur nú haft betur í tveimur deildarleikjum í röð og fikrar sig upp töfluna á meðan Skaginn situr fastur á botninum.

Alex Freyr Hilmarsson náði forystunni fyrir gestina frá Vestmannaeyjum skömmu fyrir lok fyrri háfleiks. Alex Freyr var þá einn á auðum sjó á Sjómannadaginn á fjærstönginni, tók boltann á lofti og smellhitti fyrirgjöf Vicente Valor.

Staðan 1-0 fyrir ÍBV í hálfleik en sú staða var sanngjörn þar sem Eyjamenn voru heilt yfir sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Vicente Valor var nálægt því að koma ÍBV yfir áður en Alex Freyr braut ísinn. Skagamenn björguðu á línu eftir skot Vicente en í sömu sókn áttu Eyjmenn heimtingu á vítaspyrnu. Árni Marínó Einarsson virtist þá fella Sverri Pál en Arnar Þór Stefánsson, dómari leiksins lét sér fátt um finnast og dæmdi ekkert.

Það var svo téður Sverrir Páll sem tvöfaldaði forystu Eyjamanna með stórglæsilegu marki í upphafi seinni hálfleiks. Sverrir Páll tók þá eftir að Árni Marínó stóð framarlega í marki Skagamanna. Sverrir Páll greip Árna Marínó í bólinu með skoti sínu rétt fyrir framan miðju sem fór í fallegum boga inn í mark heimamanna.

Sverrir Páll var svo aftur á ferðinni þegar hann geirnegldi stigin þrjú til Vestmannaeyja með öðru marki sínu í leiknum og þriðja marki Eyjamanna á 84. mínútu leiksins. Arnar Breki Gunnarsson lagði boltann á Sverri Pál sem kláraði færið með hnitmiðuðu skoti. 

Það er sterkt fyrir Eyjamenn að Sverrir Páll sé að draga fram markaskóna í ljósi þess að Omar Sowe verður ekki meira með Eyjaliðinu á þessu keppnistímabili og Oliver Heiðarson verður fjarri góðu gamni næstu vikurnar vegna meiðsla. 

Sverrir Páll er nú kominn með þrjú deildarmörk en hann opnaði markareikning sinn í deildinni þegar ÍBV lagði FH að velli í síðustu umferð. 

ÍBV situr í sjötta sæti deildarinnar með 14 stig líkt og Stjarnan sem er sæti ofar þar sem liðið hafur hagstæðari markatölu. Skagamenn verma aftur á móti botnsæti deildarinnar með níu stig.

Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, var sáttur við lærisveina sína. Mynd: ÍBV

Þorlákur: Gott að fara með tvo sigra inn í kærkomið hlé

„Við spiluðum virkilega vel í þessum leik og náðum stjórn á spilinu fljótlega í leiknum og höfðum yfirhöndina lengstum í þessum leik. Við skoruðum þrjú góð mörk og fyrir utan mörk tvö sem Sverrir Páll skoraði skilaði hann góðu kvöldverki. Hélt boltanum vel fyrir okkur og skilaði boltanum vel frá sér,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV. 

„Það er svo mjög sterkt fyrir okkur að fá Alex Frey og Vicente aftur inn á miðsvæðið og boltinn gekk vel í gegnum þá í þessum leik. Alex Freyr skorar svo gott mark eftir góðan undirbúnig frá Vicente. Það var góður bragur á Eyjaliðinu í kvöld eins og hefur verið bara heilt yfir í sumar,“ sagði Þorlákur enn fremur. 

„Við erum að fikra okkur upp töfluna og markmiðið er að vera í efri hlutanum þegar hefðbundinni deildarkeppni lýkur og komast í keppni sex efstu liðanna. Við erum ekkert að fara fram úr okkur með þá stefnu og tökum bara einn leik fyrir í einu,“ sagði hann. 

„Nú tekur við kærkomið frí eftir mikla törn þar sem við höfum lent í töluvert af meiðslum. Bæði langtíma meiðslum og hefðbundnum meiðslum þar sem leikmenn hafa verið að missa einn til tvo leiki út. Nú fáum við tíma til þess að hlaða batterýin og ég er sjálfur á leið í frí með konunni minni. Það verður gott að fá smá hvíld frá atinu í fótboltanum,“ sagði Þorlákur um framhaldið. 

Jón Þór: Ekkert jákvætt sem við tökum úr þessum leik

„Þetta var ofboðslega slök spilamennska hjá Skagaliðinu í kvöld. Við mættum illa stemmdir til leiks og komumst aldrei í neinn takt við leikinn. Eyjamenn voru ofan á alls staðar og áttum þennan sigur fyllilega skilinn og ég bara óska þeim til hamingju með hann. 

Við vinnum engin návígi, vorum hægir í spilinu í sóknarleiknum og það vantaði bara upp á alla grunnþætti fótboltans að þessu sinni. Það er mikið áhyggjuefni hvað við vorum andlausir í þessum leik,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir að flautað var til leiksloka. 

„Það er sama sagan hjá okkur. Það er annað hvort on eða off hjá okkur. Svo virðist sem leikmenn liðsins hafi ekki náð að höndla það að vinna Blika í síðustu umferð. Þeir mættu af hálfum hug inn í þetta verkefni. Voru með hælsendingar og kæruleysi í öllum okkar aðgerðum og það kann ekki góðri lykku eð stýra,“ sagði Jón Þór svekktur. 

„Við þurfum að hugsa okkar gang í landsleikjahlénu og í raun verður það ekkert hlé hjá okkur. Við þurfum að vinna í okkar málum næstu tvær vikurnar og sjá til þess að við mætum almennilega til leiks þegar deildin hefst á nýjan leik,“ sagði hann þar að auki. 

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍAVísir/Jón Gautur

Atvik leiksins

Fyrra markið hjá Sverri Páli var algjört augnakonfekt og gladdi augað rækilega og það sama má svo sem segja um markið sem Alex Freyr skoraði.

Stjörnur og skúrkar

Marcel Zapytowski var öruggur í sínum aðgerðum í marki Eyjamanna, Sigurður Arnar Magnússon öflugur í hjarta varnarinnar og Vicente Valor og Alex Freyr mikið í boltanum á miðsvæðinu auk þess að leggja upp og skora fyrsta mark ÍBV í leiknum.

Sverrir Páll skoraði svo tvö góð mörk og fylgdi eftir markinu sem hann skoraði á móti FH í síðustu umferð deildarinnar en hann opnaði þá markareikning sinn í deildinni í sumar.

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins, Arnar Þór Stefánsson, Patrik Freyr Guðmundsson, Ronnarong Wongmahadthai og Hreinn Magnússon komust nokkuð skammlaust frá þessum leik.

Ég hefði flautað víti þegar Sverrir Páll var felldur en annars hef ég ekkert upp á dómarateymið að setja. Af þeim sökum fá þeir átta í einkunn.

Stemming og umgjörð

Fínasta stemming á Sjómannadaginn uppi á Skipaskaga. Allt upp á tíu í umgjörð leiksins og blaðamenn fóru saddir og sælir í bæinn að loknum leiknum en þeir fengu hamborgara, prins póló, kaffi og allt það gos sem hugurinn girntist.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira