Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Agnar Már Másson skrifar 10. júní 2025 09:15 Lögregluna í Austurríki grunar að árásarmaðurinn sé nemandi. Vísir/Getty Að minnsta kosti níu eru látnir og fleiri særðir eftir skotárás í menntaskóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn er talinn vera látinn.
Kronen Zeitung greinir frá því að umfangsmikil lögregluaðgerð standi yfir við skóla í borginni, sem er sú næststærsta í landinu. Miðillinn segir árásina eina verstu skotárás í sögu Austurríkis. Að sögn lögreglu voru bæði nemendur og kennarar skotnir. Lögreglu grunar að árásarmaðurinn sé nemandi sem taldi sig vera þolanda eineltis. Níu eru sagðir látnir; átta nemendur, árásarmaðurinn þar með talinn, og einn fullorðinn. Fleiri en tíu eru alvarlega særðir. Árásarmaðurinn er sagður hafa hafið skothríð inni í tveimur skólastofum. Skotárásin var í Graz, sem er í suðaustanverðu Austurríki og er næststærsta borg landsins.Elif Acar/Getty Um 160 sjúkraliðar eru á vettvangi, að sögn Kronen Zeitung, og 65 sjúkraflutningabílar hafa verið kallaðir út. Christoph Wiederkehr, menntamálaráðherra Austurríkis er á leiðinni til Graz vegna árásarinnar. Árásarmaðurinn er talinn hafa svipt sig lífi. Hann er sagður hafa fundist látinn inni á salerni skólans. Leit stendur yfir í skólabyggingunni, sem stendur við götuna Dreierschützengasse. Íbúar eru beðnir um að forðast svæðið. Fréttin hefur verið uppfærð.
Austurríki Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira