Stuðningsmenn Inter og AC dæmdir fyrir mafíutengsl Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2025 12:46 Öfgastuðningsmenn Internazionale komnir saman til að mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar félagsins. Getty/Emanuele Cremaschi Ítalskur dómari dæmdi sextán stuðningsmenn Internazionale og AC Milan í fangelsi í gær en dómarnir voru frá tveimur til tíu árum.
Þetta eru svokallaðir öfgastuðningsmenn, kallaðir Ultras. Þeir voru dæmdir fyrir morð, fjárkúgun og glæpsamleg tengsl við ítölsku mafíuna. Dómarinn féllu eftir flýtimeðferð fyrir luktum dyrum en dómsalurinn er hluti af öryggisfangelsi San Vittore sem er fangelsi í Mílanó. ESPN segir frá. Lögreglan hafði handtekið nítján manns í september síðastliðnum eftir rannsókn saksóknara en sérskipaður saksóknari gegn mafíustarfsesmi á Ítalíu tók einnig þátt í henni. Þessi dómstóll tók fyrir mál sextán af þessum nítján aðilum en annað réttarhald verður yfir hinum þremur. Þeir eru allir öfgastuðningsmenn AC MIlan. Sá dómur mun falla 19. júní. Saksóknarar héldu því fram að öfgastuðningsmannahóparnir hafi hegðað sér eins og einkaher fyrir utan fótboltaleikvanginn og um leið hafi þeir verið í beinu sambandi við mafíuna og hægriöfgahópa. Tvö hundruð stuðningsmenn AC Milan mættu fyrir utan fangelsið til að sýna kollegum sínum stuðning. Sá sem fékk lengsta dóminn, eða tíu ár, var Andrea Beretta, fyrrum leiðtogi öfgastuðningsmannahóps Internazionle. Hann hafði játað að hafa myrt Antonio Bellocco, annan meðlim í öfgastuðningsmannahóp Inter. Beretta fékk samt styttri dóm af því að hann aðstoðaði saksóknara við rannsóknina og gerðist ríkisvitni gegn því að fá styttri dóm.
Ítalski boltinn Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira