Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Árni Sæberg skrifar 25. júní 2025 12:03 Hildur Sverrisdóttir var meðal stjórnarandstöðuþingmanna sem saumuðu að Ingi í morgun. Vísir/Anton Brink Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, harðlega í morgun vegna færslu hennar á Facebook í gærkvöldi. Þar fullyrti hún að sveitarfélög muni hafa hundruði milljóna króna í auknar útsvarstekjur verði veiðigjaldafrumvarpið að lögum. Stjórnarandstaðan segir það til marks um að Inga skilji frumvarpið ekki.
Umræður um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra héldu áfram þegar þingfundur hófst í morgun og þingmenn ræddu fundarstjórn forseta. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu færslu Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og starfandi forsætisráðherra, á Facebook að umræðuefni sínu. „Endilega hlustið á falsið og hræðsluáróður hinnar grímulausu hagsmunagæslu stjórnarandstöðunnar gegn eðlilegu og leiðréttu veiðigjaldi. Jón Gunnarsson talar um skerðingu eignarréttar ! HVAÐA EIGNARRÉTTAR ??? Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“ sagði Inga meðal annars í færslunni. Ráðherrar kynni sér málið Það sem helst vakti athygli stjórnarandstöðunnar voru ummæli Ingu í færslunni um auknar tekjur sveitarfélaganna vegna breytinga á veiðigjaldi. „Í stað þess að gleðjast yfir því að sveitarfélögin fái hundruði milljóna þegar upp verður staðið i auknar tekjur með viðbótar og eðlilegum gjöldum fyrir aðgang að auðlindinni okkar og endurreisn á mölbrotunum innviðum sem við fengum í arf frá fyrri ríkisstjórn nei, ó nei þá hrópa þeir og arga eins og við séum að koma öllu í kalda kol. Ömurlegt að verða vitni að öðru eins,“ sagði hún. „Í gær steig fram á ritvöllinn sitjandi hæstvirtur forsætisráðherra, Inga Sæland, þar sem hún fór mikinn gegn málflutningi okkar hér í stjórnarandstöðunni og áhyggjum þeim sem við höfum af því frumvarpi sem hér liggur fyrr Alþingi. Hún segir, með leyfi forseta, að „með frumvarpinu muni sveitarfélögin fá hundruð milljóna í auknar útsvarsgreiðslur,“ tilvitnun lýkur. Til upplýsinga þá segir í fumvarpinu sjálfu, í kafla 5.1.3, að „ekki verði lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna sveitarfélaga.“ Til upplýsinga, sem útsvarsgreiðslur sannarlega eru. Ég vil fara þess góðfúslega á leit við forseta að hlutast til um það að á einhverjum tímapunkti er komið nóg af því að fyrirsvarsmenn ríkisstjórnarinnar og háttvirtir stjórnarliðar augljóslega viti ekki um hvað málið snýst á sama tíma og það er gert lítið úr málflutningi þeirra sem vita um hvað þetta mál snýst,“ sagði Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Hún haldi að það væri rétt að að lágmarki hæstvirtir ráðherrar, forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, kynni sér um hvað málið er, áður en þeir sem gagnrýni frumvarpið séu brigslaðir um falsfréttaflutning. Rangstæð valkyrja Þingmenn stjórnarandstöðunnar kepptust við að stíga í pontu til þess að taka undir með Hildi. Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokki sagði til að mynda ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á það að ráðherrar ríkisstjórnarinnar þekktu frumvarpið ekki betur en svo en að tala um hundruð milljóna auknar útsvarstekjur sveitarfélaganna. Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki sagði alveg augljóst að Inga hefði ekki lesið frumvarpið ítarlega, ekki kynnt sér það eða í það minnsta ekki skilið það. „Það er eitt, svo er annað að setja það síðan áfram á samfélagsmiðla. Ég held að það sé afar mikilvægt varðandi upplýsingar til almennings að við vöndum okkur, að við skiljum það sem við segjum. Af því að við vitum það öll hér að orðum fylgja ábyrgð og að skrifuðum orðum fylgja líka ábyrgð.“ Bergþór Ólason Miðflokki tók undir með þeim sem á undan honum stigu í pontu. „Þetta er auðvitað mjög sérstakt, að ein valkyrjanna sé svona illa rangstæð hvað efnisatriði málsins varðar. Enda segir hér, með leyfi forseta, og ég vil biðja virðulegan forseta að koma þessu áleiðis til hæstvirts ráðherra Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, en í frumvarpinu stendur beinlínis: „Í frumvarpinu eru því ekki lagðar til breytingar sem hafa bein fjárhagsleg áhrif á tekjustofna eða útgjöld sveitarfélaga.“ Þetta stendur í frumvarpinu sem við ræðum hér. Síðan kemur hæstvirtur ráðherra fram á ritvöllinnræðugrundvöll þess.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Breytingar á veiðigjöldum Tengdar fréttir Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Þingfundur stóð fram til klukkan rúmlega þrjú í nótt og enn eina ferðina voru breytingar á veiðigjöldum eina umræðuefnið. 25. júní 2025 06:35 Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Samkvæmt nýrri könnun um stuðning við frumvarp atvinnuvegaráðherra, um hækkun veiðigjalda, hefur dregið úr stuðningi almennings við málið milli mánaða. Stuðningurinn er eftir sem áður mikill. 24. júní 2025 14:41 „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um forsætisráðherra á þinginu og gagnrýndu ummæli sem hún lét falla í Kastljósi í gær. Þar sakaði hún minnihlutann um fjalla um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar í „falsfréttastíl.“ Formaður atvinnuveganefndar sakar minnihlutann um að stunda blekkingar. 24. júní 2025 11:43 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Sjá meira
Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Þingfundur stóð fram til klukkan rúmlega þrjú í nótt og enn eina ferðina voru breytingar á veiðigjöldum eina umræðuefnið. 25. júní 2025 06:35
Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Samkvæmt nýrri könnun um stuðning við frumvarp atvinnuvegaráðherra, um hækkun veiðigjalda, hefur dregið úr stuðningi almennings við málið milli mánaða. Stuðningurinn er eftir sem áður mikill. 24. júní 2025 14:41
„Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um forsætisráðherra á þinginu og gagnrýndu ummæli sem hún lét falla í Kastljósi í gær. Þar sakaði hún minnihlutann um fjalla um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar í „falsfréttastíl.“ Formaður atvinnuveganefndar sakar minnihlutann um að stunda blekkingar. 24. júní 2025 11:43