Viðskipti innlent

Allt­of margir sem sitja eftir með sárt ennið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri fasteigna hjá HMS kynnti matið í dag.
Tryggvi Már Ingvarsson framkvæmdastjóri fasteigna hjá HMS kynnti matið í dag. Vísir/Sigurjón

Húsnæði á Íslandi er almennt verulega vantryggt fyrir bruna og allt of margir láta hjá líða að uppfæra brunabótamat á eignum sínum. Dæmi eru um að fólk sitji eftir með sárt ennið og fái litlar sem engar bætur eftir eldsvoða.

Nýr pallur, heitur pottur og ný eldhúsinnrétting. Þetta eru allt hlutir sem skipta máli í brunabótamati en langflestir hafa ekki fyrir því að sækja um uppfært brunabótamat eftir framkvæmdir heima fyrir. 

Það voru jarðhræringar í Grindavík sem urðu til þess að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) lagðist í athugun á nýju mati á brunabótatryggingum Íslendinga en í ljós kom að nær öll hús í eigu einstaklinga í bænum voru með of lágt brunabótamat og nam skekkjan að meðaltali um tíu prósentum en í mörgum tilvikum var munurinn meiri. Það er mat stofnunarinnar að gera megi ráð fyrir því að brunabótamat alls húsnæðis á Íslandi sé vanmetið um fjögur til átta prósent.

„Almenningur er ekki nægjanlega meðvitaður um það að það þarf að hafa frumkvæði til þess að endurmeta eignir ef farið er í verulegt viðhald eða endurbætur eða stækkun eigna,“ segir Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteigna hjá HMS.

Auðvelt sé að sækja um endurmat á brunabótamati í gegnum netið og segir Tryggvi stofnunina búa sig undir að þeim beiðnum fjölgi mikið í kjölfar kynningar vegvísisins í dag. Forstjóri VÍS segir of mörg dæmi þess að fólk siti eftir með sárt ennið í kjölfar tjóns vegna brunabótamats.

Það skiptir máli að horfa á hvert er brunabótamat minnar eignar, brunabótamat er á ábyrgð eigenda






Fleiri fréttir

Sjá meira


×