Viðskipti innlent

Gjald­þrotin námu 1,2 milljörðum króna

Árni Sæberg skrifar
Björn Ingi Hrafnsson hefur verið umsvifamikill fjölmiðlamaður í gegnum tíðina.
Björn Ingi Hrafnsson hefur verið umsvifamikill fjölmiðlamaður í gegnum tíðina. Vísir/Vilhelm

Skiptum er lokið á þrotabúum fjögurra félaga fjölmiðlamannsins Björns Inga Hrafnssonar, sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á árunum 2017, 2018 og 2019. Alls var kröfum upp á 1,22 milljarða króna lýst í búið.

Félögin sem um ræðir eru DV ehf., Pressan ehf., Vefpressan ehf. og Eyjan Media ehf. Í auglýsingum í Lögbirtingablaðinu segir að alls hafi kröfum upp á 1,22 milljarða króna verið lýst í búin. Forgangskröfur í bú Pressunnar og DV hafi fengist greiddar að fullu og 38 prósent almennra krafna.

Aftur á móti hafi engar eignir fundist í búum Vefpressunnar og Eyjunnar media. Kröfur í það fyrrnefnda hafi numið 383 milljónum króna og í það síðarnefnda 5,1 milljón.

Björn Ingi Hrafnsson var stjórnarformaður Pressunnar ehf. og Vefpressunnar ehf. þegar Pressan keypti útgáfu DV og dv.is haustið 2014, en Vefpressan, sem gaf út og rak vefmiðlana Pressuna.is, Eyjuna.is og Bleikt.is, var í eigu Pressunnar. 

Þegar Pressan keypti DV ehf. varð Björn Ingi jafnframt stjórnarformaður þess félags. Það var síðan í apríl 2017 sem nýir hluthafar komu inn í Pressuna og Björn Ingi hætti sem stjórnarformaður.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×