Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. júní 2025 19:21 Hungary Pride March Participants in the Pride march cross the Elisabeth Bridge in Budapest, Hungary, Saturday, June 28, 2025. (AP Photo/Rudolf Karancsi) Tugir þúsunda tóku þátt í baráttugöngu fyrir réttindum hinsegin fólks sem fram fór í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands í dag, í trássi við vilja stjórnvalda þar í landi sem gáfu ekki leyfi fyrir göngunni.
Nokkuð bakslag hefur orðið í réttindum hinsegin fólks í stjórnartíð Viktors Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, en stjórn hans hefur hótað lagalegum aðgerðum gegn aðgerðarsinnum fyrir réttindum hinsegin fólks og gætu þátttakendur átt sekt yfir höfði sér fyrir það eitt að taka þátt í göngunni. Sýna samstöðu með hinsegin fólki í Ungverjalandi Hópur frá Samtökunum 78 á Íslandi var meðal þátttakenda í göngunni, þeirra á meðal Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður samtakanna. „Við erum hérna til þess að taka þátt í Búdapest-Pride sem er haldið núna í þrítugasta skiptið, en með dálítið öðru sniði en undanfarin ár vegna þess að það má segja að þetta séu sannarlega mótmæli vegna þess að gangan var gerð ólögleg fyrr á þessu ári,“ segir Bjarndís sem var stödd í miðri göngunni þegar fréttastofa náði af henni tali fyrr í dag. Hinsegin mótmælagöngunni mótmælt „Við höfum orðið vör við andmótmælendur og við höfum orðið vör við lögregluna. Lögreglan virðist vera meira í því hlutverki að verja þessa andmótmælendur frekar en að verja gönguna sem slíka, en við höfum ekki orðið fyrir neinu ónæði af því. Hér eru óstaðfestar fréttir um að hér séu yfir hundrað þúsund manns sem er náttúrlega talsvert fleira en einhverjir mótmælendur. Sem segir okkur svo rosa mikið um það hvaða gildi þessi ganga hefur,“ segir Bjarndís. Gleðin var við völd í Búdapest þrátt fyrir andstöðu stjórnvalda.AP/Rudolf Karancsi Íslenski hópurinn, líkt og aðrir þátttakendur göngunnar segir aldrei hafa komið til greina að láta hótanir stjórnvalda um mögulegar sektir stöðva sig. Mikill hugur er í fólki að sögn Bjarndísar, fagnaðarlæti brutust reglulega út og mikil samheldni ríkjandi á svæðinu þrátt fyrir mótbárur stjórnvalda. Ólíkt landsstjórninni í Ungverjalandi hefur borgarstjórinn í Búdapest staðið með skipuleggjendum göngunnar. „Ég myndi segja að það væri góð stemning og það er mikill hugur í fólki,“ segir Bjarndís.
Ungverjaland Hinsegin Mannréttindi Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Fleiri fréttir Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Sjá meira