Brottfararstöð dómsmálaráðherra komin í samráðsgátt Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2025 16:49 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Vísir/Einar Dómsmálaráðherra hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda áform um frumvarp til laga um brottfararstöð. Frumvarpið kveður á um heimildir og skilyrði fyrir vistun útlendings á brottfararstöð vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar.
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að unnið sé eftir markvissri en jafnframt ábyrgri stefnu í útlendingamálum og frumvarpið sé mikilvægur liður í þeirri vinnu. „Ísland er í dag eina Schengen-ríkið sem ekki rekur brottfararstöð. Ítrekað hefur verið bent á að ekki sé forsvaranlegt að vista þessa einstaklinga í fangelsum landsins. Með þessu tökum við markvisst skref til að ná betri stjórn á landamærum og tryggjum að málsmeðferð okkar í útlendingamálum sé í samræmi við Norðurlöndin.“ Vistun snerti grundvallarmannréttindi þeirra sem vísa á á brott Þá segir að markmið frumvarpsins sé uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Schengen-samstarfinu með því að setja skýrar reglur um hvenær og að hvaða skilyrðum uppfylltum sé heimilt að vista einstaklinga á brottfararstöð. Með frumvarpinu sé stefnt að því að samræma íslenska lagaumgjörð og framkvæmd í útlendingamálum við Norðurlöndin. Vistun einstaklinga á brottfararstöð, í þeim tilgangi að flytja viðkomandi af landi brott, snerti grundvallarmannréttindi þeirra og sé því háð ströngum takmörkunum. Í frumvarpinu séu settar skýrar reglur um skilyrði fyrir slíkri vistun, málsmeðferð fyrir dómstólum, réttindi og skyldur einstaklinga og fleira. Þá sé mælt fyrir um að vistun skuli aðeins koma til greina þegar vægari úrræði duga ekki til. Frumvarpið byggi á langri undirbúningsvinnu en á undanförnum árum hafi eftirlitsaðilar Schengen-samstarfsins bent á að það brjóti gegn alþjóðlegum skuldbindingum Íslands að vista útlendinga í þessari stöðu í fangelsi. Gert sé ráð fyrir að í brottfararstöð verði tryggður viðeigandi aðbúnaður og þjónusta fyrir einstaklinga sem bíða brottvísunar. Innleiða skimunarferli Loks segir að með frumvarpinu sé einnig lagt til að innleidd verði svokölluð skimunarreglugerð. Reglugerðin kveði á um að ríkisborgarar þriðju ríkja sem koma að ytri landamærum Schengen-svæðisins skuli sæta ákveðnu skimunarferli áður en frekari ákvörðun um framhald er tekin. Í því felist meðal annars auðkenning, bakgrunnsathugun, bráðabirgðamat á heilsu og mat á því hvort viðkomandi sé í viðkvæmri stöðu. Slíkar ráðstafanir séu þegar gerðar hér á landi samkvæmt lögum um útlendinga þegar einstaklingur sækir um alþjóðlega vernd. Skimunarreglugerðin kveði þó á um að ferlið eigi einnig að ná til þeirra sem koma ólöglega til landsins án þess að sækja um vernd og þeirra sem dvelja ólöglega í landinu án þess að hafa áður verið skimaðir við komu. Lokað búsetuúrræði orðið að brottfararstöð Áform dómsmálaráðherra eru ekki ný af nálinni enda kynnti forveri hennar í embætti, Guðrún Hafsteinsdóttir, frumvarp af svipuðum meiði. Þá var reyndar talað um lokað búsetuúrræði í stað brottfararstöðvar. Í áformum um lagasetningu sem Þorbjörg Sigríður hefur birt í Samráðsgátt segir með því sé verið að fylgja brottvísunartilskipun Evrópuþingsins, sem innleidd var með breytingum á lögum um útlendinga árið 2016. Í drögunum er specialised detention center þýtt úr ensku sem brottfararstöð. Þá segir að brugðist sé við athugasemdum eftirlitsaðila á vegum Schengen-samstarfsins. Í frumvarpsdrögum Guðrúnar voru helstu ástæður fyrir frumvarpinu tíndar til. Í fyrsta lagi væri ekki talið „forsvaranlegt að úrskurða útlendinga í gæsluvarðhald og vista í fangelsi til þess eins að tryggja framkvæmd ákvörðunar um að viðkomandi skuli yfirgefa landið“ Innleiða þyrfti að fullu „svokallaða brottvísunartilskipun“ Evrópuþingsins og ráðsins um sameiginlega staðla og málsmeðferð í aðildarríkjum varðandi endursendingu ríkisborgara þriðju landa sem dvelja þar ólöglega. Bregðast þyrfti við athugasemdum eftirlitsnefndar með Schengen-samstarfinu við núverandi fyrirkomulag þar sem útlendingar í þessari stöðu séu vistaðir í fangelsi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hælisleitendur Viðreisn Landamæri Brottfararstöð fyrir útlendinga Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira