KR í markmannsleit eftir meiðsli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2025 18:45 Jamie Brassington, markmannsþjálfari KR, og Óskar Hrafn, þjálfari liðsins, ræða hér saman. Vísir/Ernir Lið KR í Bestu deild karla í knattspyrnu er í markmannsleit þar sem Sigurpáll Sören Ingólfsson ökklabrotnaði á æfingu nýverið.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, staðfesti tíðindin í stuttu viðtali við Fótbolti.net. Hann sagði jafnframt að Sigurpáll Sören væri á leið í aðgerð og yrði frá næstu tvo mánuðina eða svo. „Í dag erum við með Hauk Loga Tryggvason, 2. flokks markmann, sem hefur verið okkar þriðji markvörður,“ sagði Óskar Hrafn einnig. Hinn 22 ára gamli Sigurpáll Sören hefur verið varamarkvörður KR í ár sem og lungann af síðasta tímabili. Hans eini leikur á tímabilinu kom í gríðarlega öruggum 11-0 sigri á KÁ í Mjólkurbikarnum. Franz Sigurjónsson, þrítugur Eyjamaður sem lék 11 leiki með KFG í 2. deildinni á síðustu leiktíð, hefur verið að æfa með KR samkvæmt heimildum Fótbolti.net. „Við vorum ekki að leita að markmanni, þannig við erum á algjörum byrjunarreit,“ sagði Óskar Hrafn jafnframt um markmannsleit KR-inga. Þá staðfesti hann að einhver af útileikmönnum liðsins þyrfti að setja á sig hanskana á æfingu í vikunni. KR er sem stendur í 11. sæti Bestu deildar karla með 16 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti. Á laugardaginn kemur tekur liðið á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks í Vesturbænum. Það verður fyrsti leikur liðsins á heimavelli í sumar þar sem loks er búið að leggja gervigras á völlinn.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Sjá meira