Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Samúel Karl Ólason skrifar 30. júlí 2025 16:06 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Vísir/Vilhelm Arion banki hagnaðist um tæpa tíu milljarða króna á öðrum ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 5,5 milljarðar. Bankastjóri segir afkomuna umfram væntingar.
Þetta kemur fram í nýju uppgjöri bankans sem birt var í dag. Þar kemur fram að arðgreiðsla verði væntanlega helmingur af hagnaði, miðað við arðgreiðslustefnu bankans. Meðal þess helsta sem kemur þar fram er að hagnaður hafi verið 9,8 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi og að arðsemi eiginfjár hafi verið 19,7 prósent. Á sama fjórðungi í fyrra var arðsemin 11,5 prósent. Hagnaður á hlut var 6,59 krónur, samanborið við 3,86 krónur í fyrra. Rekstrarkostnaður er sagður hafa svo gott sem staðið í stað milli ára en heildarkostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 36,7 prósent. Í fyrra var það 46,2 prósent. Á fyrstu sex mánuðum ársins hagnaðist Arion banki um 16,2 milljarða króna, samanborið við 9,9 milljarða á sama tímabili í fyrra. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar hér á vef Arion banka. Viljayfirlýsing um samruna stór tíðindi Í tilkynningu frá Arion er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra, að afkoma annars fjórðungs ársins hafi verið góð og umfram væntingar. Hún skýrist af ýmsum þáttum en hann segir mestu skipta að fjölbreytt starfsemi Arion samstæðunnar hafi gengið vel á nær öllum sviðum. Þá segir Benedikt að stóru tíðindin af fjórðungnum séu vissulega viljayfirlýsing Arion banka og Kviku banka um samruna, sem undirrituð var þann 6. júlí. „Viljayfirlýsingin felur í sér að hluthafar Kviku fá 26% hlut í sameinuðu félagi nái samruninn fram að ganga. Markmiðið er að til verði sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini. Verði af samrunanum mun það efla þá fjármálaþjónustu sem sameinað félag veitir einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum. Samruninn getur skapað tækifæri til breiðari tekjumyndunar, áhættudreifingar og aukins hagræðis í starfsemi sameinaðs félags og þar með á íslenskum fjármálamarkaði,“ segir Benedikt.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira