Skipar samningateymi um uppbyggingu Víkings á Markarsvæði Atli Ísleifsson skrifar 22. ágúst 2025 08:00 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði fram tillögu um skipu samningsteymisins vegna uppbyggingar Víkings á athafnasvæði Gróðrarstöðvarinnar Markar. Vísir/Arnar/Mörk Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt erindisbréf sérstaks samningateymis um uppbyggingu og stækkun athafnasvæðis Knattspyrnufélagsins Víkings í Fossvogi þannig að það muni einnig ná yfir athafnasvæði Gróðrarstöðvarinnar Markar. Borgin hyggst einnig kanna möguleika á nýrri staðsetningu gróðrarstöðvarinnar í samráði við eigendur hennar.
Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs í gær. Þorsteinn Gunnarsson borgarritari verður formaður starfshópsins sem ætlað er að móta og semja um langtímasýn fyrir aðstöðu Víkings á Markarsvæðinu og ná saman um tímalínur breytinga fyrir árslok. Þá á teymið að vinna drög að forsögn fyrir deiliskipulagsgerð á þeim grunni og endurskoða umferðaröryggismál fyrir lok mars á næsta ári, en samhliða taka til endurskoðunar og semja um eignarhald, uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja Víkings til framtíðar. Rann út 2008 Í tillögu Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra er forsaga málsins rakin en borgarráð ákvað í júlí 2008 að samþykkja stækkun athafnasvæðis íþróttafélagsins þegar gildandi lóðarleigusamningur við Gróðrastöðina Mörk myndi renna út árið 2016. Frá árinu 2008 hafi fulltrúar á vegum Reykjavíkurborgar og Víkings undirbúið verkefnið og unnið ítarlegar tillögur í starfshóp um framtíðarsýn og uppbyggingu og var sérstök skýrsla um viðhald og uppbyggingu á mannvirkjum félagsins síðan unnin og kynnt af hálfu fulltrúa Reykjavíkurborgar og Víkings árið 2018. „Þann 21. maí 2025 barst Reykjavíkurborg erindi frá aðalstjórn Víkings um efndir fyrirheits Reykjavíkurborgar frá 2008 um stækkun á athafnasvæði Víkings. Eftir fund formanns og framkvæmdastjóra Víkings með borgarstjóra þann 11. ágúst síðastliðinn var sammælst um að skipa samningateymi með fulltrúum borgarinnar og Víkings um framtíðaraðstöðu fyrir Knattspyrnufélagið Víking í Traðarlandi og á Markarsvæði. Samhliða þessu verði umhverfis- og skipulagssviði falið að aðstoða eigendur Gróðrastöðvarinnar Markar að finna nýja staðsetningu fyrir stöðina. Fulltrúar borgarinnar munu samhliða viðræðum við Knattspyrnufélagið Víking eiga í viðræðum við eigendur Gróðrastöðvarinnar Markarinnar og verður lagt fram erindisbréf um þær viðræðu,“ segir í tillögunni. Auk Þorsteins Gunnarssonar borgarritara eru í starfshópnum einnig sviðstjóri menningar- og íþróttasviðs Reykjavíkurborgar, þrír fulltrúar Knattspyrnufélagsis Víkings og lögmaður á vegum borgarinnar. Ekki staðið við samkomulagið af „óskiljanlegum ástæðum“ Hildur Björnsdóttir og Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði, létu bóka það í gær að þær samþykktu erindisbréf í trausti þess að farið yrði í viðræður við Knattspyrnufélagið Víking um stækkun athafnasvæðis félagsins af alvöru af hálfu borgarinnar. Þær segja að „af óskiljanlegum ástæðum“ hafi Reykjavíkurborg ekki enn staðið við fyrri fyrirheit gagnvart Víkingi um svæðið þrátt fyrir margítrekaðar óskir og eftirrekstur félagsins. „Víkingur hefur hins vegar sýnt mikla þolinmæði og samningsvilja i málinu, sem borgin ætti að vera þakklát fyrir. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa oft tekið málið upp á vettvangi borgarstjórnar og lagt til að staðið verði við umrætt fyrirheit gagnvart Víkingi. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar og fylgiflokka hennar hafa hingað til ekki viljað standa við loforðið heldur margoft komið sér undan því með ótrúlegum töfum og undanbrögðum. Nú síðast hefur meirihlutinn tvisvar frestað tillögum Sjálfstæðisflokksins um málið í krafti atkvæða á fundum borgarstjórnar 3. og 24. júní. Vonandi verður ekki um frekari tafir að ræða af hálfu borgarinnar heldur staðið við áðurnefnt loforð enda sautján ár liðin frá því að það var gefið,“ segja þær Hildur og Ragnhildur Alda.
Reykjavík Borgarstjórn Skipulag Blóm Víkingur Reykjavík Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Fleiri fréttir Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Sjá meira