Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar 10. september 2025 20:00 Gott er að taka samtalið við maka sinn um hvað gera skal við nektarmyndir ef sambandinu lýkur. Getty Kannast þú við það að hafa sent maka eða bólfélaga mynd af þér? Stundum eru þetta hversdagslegar sjálfur sem við sendum til að deila augnablikinu. Stundum eru þetta kynferðislegar myndir sem eiga að kveikja á löngun eða kynferðislegum áhuga. Í báðum tilfellum erum við að treysta einhverjum fyrir líkama okkar.
En hvað gerist þegar sambandinu lýkur? Hversu lengi er í lagi að eiga myndir sem þú fékkst sendar? Er eðlilegt að skoða þær löngu seinna og jafnvel fróa sér yfir þeim? Og hvað breytist þegar þú byrjar í nýju sambandi? Í viðtölum við skjólstæðinga mína koma reglulega upp umræður sem tengjast myndsendingum. Bæði þegar brotið hefur verið á fólki með dreifingu mynda en einnig hafa komið fram allskonar vangaveltur um hvaða reglur gilda um myndir sem þeim hafa verið sendar eða þau sent. Kynlífið með Aldísi, sálfræðingi og kynlífsráðgjafa, er vikulegur liður á Vísi. Í honum fræðir Aldís lesendur um kynlíf og svarar spurningum frá lesendum. Lesendur eru hvattir til þess að senda Aldísi spurningar í spurningaformi neðst í pistli. Lögin eru skýr en hvað með það sem fellur ekki undir lögin? Á Íslandi er ólöglegt að taka kynferðislegar myndir af öðrum, deila slíku efni og senda óumbeðnar kynferðislegar myndir á aðra án leyfis. Þá má heldur ekki hóta að dreifa slíku efni. Þetta allt kallast stafrænt kynferðisofbeldi. Í lögum er hins vegar ekkert fjallað um hvað skal gera við myndir eftir að sambandi lýkur. Þar koma inn spurningar um siðferði og virðingu. Myndir sem þú færð sendar eru alltaf eign þess sem sendi þær. Yfirleitt gefur myndsending í skyn að viðkomandi treysti þér til að meðhöndla myndina á viðeigandi hátt. Þegar sambandi lýkur er ekki sjálfgefið að þú getir átt eða skoðað áfram myndir af fyrrverandi. Hvenær á að eyða þeim? Vandinn er sá að við ræðum sjaldan þessar myndir og hvað við viljum að sé gert við þær að sambandi loknu. Það er ekki óalgengt að fólk eigi erfitt með að eyða myndum af fyrrverandi maka eða bólfélaga. Í samtölum mínum við fólk kemur oft í ljós að þau líta á myndirnar sem gjöf til þeirra og því megi halda áfram að skoða þær, jafnvel löngu eftir að sambandi lýkur. Einnig hefur fólk mjög ólíkar skoðanir á því hversu löngu eftir sambandsslit skuli eyða myndum. Er það strax? Eftir mánuð? Þrjá mánuði? Hálft ár? Eða má eiga þær þar til þú byrjar í nýju sambandi eða hittir nýja manneskju? Það er ekki ólöglegt að halda í myndir og jafnvel nota þær í sjálfsfróun. En spurningin er þessi; hvort finnst þér mikilvægara að halda í gömlu myndirnar eða bera virðingu fyrir því trausti sem fyrrum maki eða bólfélagi sýndi þér? Best væri auðvitað að taka samtalið við viðkomandi! Mikilvægt er að pör ræði saman áður en nektarmyndir eru sendar til hvors annars.Getty Tökum samtölin, líka þau sem geta verið óþægilegri Í samböndum og/eða með bólfélögum er því góð regla að ræða þessi hluti. Hvernig þið viljið nálgast slíkar myndir í ykkar sambandi. Fyrir sum er mikilvægt að myndum eða myndböndum sé eytt strax á meðan önnur eru opin fyrir því að fyrrverandi eigi þetta áfram. Skýr samskipti eru alltaf best! „Ég vil biðja þig um að eyða þeim myndum sem ég hef sent þér“ eða „það er í lagi mín vegna ef þú eyðir ekki þeim myndum sem ég hef sent þér“. Sömuleiðis getur verið þægilegt að fá skýr skilaboð frá fyrrverandi að búið sé að eyða öllum myndum eða að fengið sé samþykki fyrir því að viðkomandi eigi áfram myndirnar. Að lokum snýst þetta um virðingu. Myndirnar á skjánum eru ekki bara einhverjir pixlar á skjá heldur tákna þær traustið sem fyrrverandi bar til þín. Það traust er mikilvægt að fara vel með <3
Kynlífið með Aldísi Kynlíf Stafrænt ofbeldi Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira