Innlent

Verkalýðs­leið­togar segja ríkis­stjórnina þver­brjóta leik­reglur vinnu­markaðarins

Eiður Þór Árnason skrifar
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, er meðal þeirra sem fara hörðum orðum um fyrirætlanir stjórnvalda. 
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, er meðal þeirra sem fara hörðum orðum um fyrirætlanir stjórnvalda.  Vísir/Vilhelm

Verkalýðsleiðtogar segja áform um afnám áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna og tímabundinnar lausnar þeirra fela í sér einhliða skerðingu á réttindum launafólks. Með þessu þverbrjóti ríkisstjórnin leikreglur vinnumarkaðarins. Verkalýðshreyfingin muni verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku. 

„Með þessum áformum afhjúpar ríkisstjórnin þekkingar- og skeytingarleysi sitt á mikilvægi samstarfs við aðila vinnumarkaðarins,“ segir í yfirlýsingu frá forseta ASÍ og formönnum Fíh, KÍ, BHM og BSRB.

Fordæmalaust sé að stjórnvöld taki einhliða ákvörðun um breytingar á grundvallarréttindum vinnandi fólks án samráðs við verkalýðshreyfinguna. Verkalýðsforkólfarnir segja þetta bætast við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar af sama toga um skerðingu atvinnuleysistrygginga sem og skerðingu réttinda örorku- og ellilífeyrisþega í lífeyrissjóðum.

Undir yfirlýsinguna skrifa Finnbjörn A Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh), Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands (KÍ), Kolbrún Halldórsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM), og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi.

„Grunnstoð íslenska vinnumarkaðsmódelsins er náið samráð og samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um öll þau mál er snúa að kjörum launafólks. Þetta módel er undirstaða sterks vinnumarkaðar á Íslandi og velferðarsamfélagsins og er lykilatriði að farsæld þeirra verkefna sem unnin eru á vettvangi ríkisins.“

Fréttin er í vinnslu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×