Vilja byggja nýtt geðsvið við hlið Landspítalans í Fossvogi Lovísa Arnardóttir skrifar 18. september 2025 10:20 Lóðin sem á að byggja á. Landspítali Samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í Fossvogi svo hægt verði að hefja byggingu á nýju geðsviði Landspítalans á auðri lóð við hlið gamla Borgarspítalans. Áætlað er að byggingin verði 24 þúsund fermetrar og uppbyggingin kosti um 22,2 milljarða.
Í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs er mælst til þess að umsagna sé leitað hjá víða og að hún sé kynnt almenningi. Á fundi ráðsins var lögð fram umsókn Nýs Landspítala, sem hefur séð um byggingu nýja Landspítalans við Hringbraut, um breytingu á deiliskipulagi Landspítalans Fossvogi. Skipulagssvæðið afmarkast samkvæmt tillögunni af Háaleitisbraut til vesturs, suðurjaðri Borgarspítalans til norðurs, núverandi íbúðabyggð við Markarveg og Kjarrveg til suðurs og Álftalandi til austurs. Í fundargerðinni segir að breytingin feli í sér að deiliskipuleggja reitinn sunnan og austan núverandi Borgarsjúkrahúss / Landspítala í Fossvogi undir nýtt geðsvið LSH. Lögð verði áhersla á fremstu gæði varðandi allan aðbúnað og upplifun fólks við útfærslu sérhæfðs geðsjúkrahúss fyrir starfsmenn, sjúklinga og gesti þeirra. Yfirlitsmynd sem sýnir 3.000 m² stóra reiti jafndreifða um svæðið ásamt tveimur tillögum að því hvernig mætti koma fyrir byggingum a lóðinni við Borgarspítalann með 12.000 m² fótspori innan svæðisins eins og lýst er í skýrslunni. Landspítali Um er að ræða deiliskipulagsgerð vegna uppbyggingar á nýju húnsæði fyrir geðsvið Landspítalans sem samkvæmt forathugun skal vera 24.000 fermetrar. Gert er ráð fyrir að húsið verði með inngarða, endurhæfingarlóð og mest á tveimur hæðum. Húsið, lóðin og umhverfi er hluti af batamiðaðri meðferð sjúklinga. Þurfa að breyta landnotkun í deiliskipulagi Samkvæmt gildandi landnotkun er reiturinn skilgreindur sem íbúðasvæði og kemur því fram í skipulagslýsingunni að breyta verði landnotkun gildandi aðalskipulags í samfélagsþjónustu sem heimilar starfsemi á sviði heilbrigðismála, hjúkrunarheimila og stofnana. Þar segir einnig að mikilvægt sé að nýr húsakostur nýs geðsviðs taki mið af næstu nágrannabyggð, til að mynda fjarlægðir, þegar haft er í huga að fyrirferð byggingamassa geðsviðs verður meiri og stórskornari en íbúðabyggðar. Stærð reitsins er 8,8 hektarar í heild og kemur fram að endanleg niðurstaða um þéttleika og fyrirkomulag bygginga, bæði innbyrðis og í samhengi við næsta umhverfi sitt, meðal annars uppbrot og hæðakvóta, verður ákvörðuð í deiliskipulagi. Valkostir um staðsetningu nýrrar geðþjónustu fyrir Landspítala. F er ræktunarstöðin og B við hlið Borgarspítalans. Landspítali Í fundargerð var einnig lög fram skýrsla frá verkfræðistofunni Eflu sem um staðarval. Þar kemur fram að þrír valkostir hafi verið skoðaðir fyrir geðsviðið, tvær mögulegar útfærslur við Borgarspítalann og ein á svæði Ræktunarstöðvar Reykjavíkurborgar. Samkvæmt skýrslunni var haldið áfram með tvo af þessum valkostum, einn á hvorum stað, og bæði metin góðir kostir fyrir uppbyggingu geðþjónustu. Kostir og gallar séu við uppbyggingu á báðum lóðum. Í skýrslunni er ítarlega farið fyrir þessa kosti og galla með tilliti til umhverfisþátta eins og hljóðvistar, aðgengis að grænum svæðum, skuggavarps og menningarminja, og með tilliti til aðstæðna fyrir starfsemi. Þar var litið til fjarlægðar frá Landspítalanum, útsýnis, samgangna, mengunar og landnotkunar til dæmis. Með fundargerðinni fylgir einnig forathugunarskýrsla frá Nýjum Landspítala ohf. þar sem farið er yfir þörfina á nýju húsnæði fyrir geðsviðið og markmið verkefnisins. Þar er farið yfir úttekt á núverandi húsnæði frá árinu 2021 sem sýndi að húsnæðið er í slæmu ásigkomulagi, henti illa fyrir starfsemina og að erfitt sé að gera umbætur þannig að það fari betur um starfsemina. Starfsfólki líði illa í húsnæðinu og umhverfið sé óhentugt fyrir skjólstæðinga og sjúklinga. Full þörf á nýju húsnæði Í skýrslunni var farið yfir ýmsa kosti og staðsetningar sem kæmu til greina. Niðurstaða forathugunarinnar var sú að með tilliti til ástands, staðsetningar og stærðar núverandi húsnæðis geðþjónustunnar væri full þörf er á uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir geðþjónustu Landspítala. Byggt á ítarlegri þarfagreiningu og húsrýmisáætlun White arkitekta þurfi húsnæðið að vera um 24.000 fermetrar að stærð. Áætlaður stofnkostnaður fyrir fjármagnsliði er 22,2 milljarðar krónur og er áætlaður kostnaður við búnaðarkaup er 1,8 milljarðar krónur.
Geðheilbrigði Landspítalinn Reykjavík Skipulag Heilbrigðismál Tengdar fréttir Geðsvið Landspítala fær líka nýtt húsnæði Nýtt húsnæði Landspítala undir geðþjónustu mun rísa en þrettán og hálfur milljarður er eyrnamerktur verkefninu. Fjármálaráðherra segir uppbyggingu Landspítalans langstærstu fjárfestingu Íslandssögunnar en hún hljóðar upp á 210 milljarða í heild. 19. apríl 2023 21:55 Sjúklingar fastir á geðdeild því þeir fá ekki húsnæði Dæmi eru um sjúklinga á réttar- og öryggisgeðdeildum sem hafa beðið í ár eftir búsetuúrræði. Deildarstjóri á Landspítalanum segir fólk dæmt til geymslu og að samfélagið beri ábyrgð. 1. desember 2015 06:00 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Geðsvið Landspítala fær líka nýtt húsnæði Nýtt húsnæði Landspítala undir geðþjónustu mun rísa en þrettán og hálfur milljarður er eyrnamerktur verkefninu. Fjármálaráðherra segir uppbyggingu Landspítalans langstærstu fjárfestingu Íslandssögunnar en hún hljóðar upp á 210 milljarða í heild. 19. apríl 2023 21:55
Sjúklingar fastir á geðdeild því þeir fá ekki húsnæði Dæmi eru um sjúklinga á réttar- og öryggisgeðdeildum sem hafa beðið í ár eftir búsetuúrræði. Deildarstjóri á Landspítalanum segir fólk dæmt til geymslu og að samfélagið beri ábyrgð. 1. desember 2015 06:00