Viðskipti innlent

Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári

Atli Ísleifsson skrifar
Framkvæmdasvæðið við Hafnarbraut.
Framkvæmdasvæðið við Hafnarbraut.

Krónan hyggst opna verslun að Hafnarbraut 60 á Höfn í Hornafirði árið 2026 í nýju verslunarhúsnæði. Stefnt er að opnun verslunarinnar, sem verður um 1500 fermetrar að stærð, fyrir næsta sumar eða í síðasta lagi um haustið.

Þetta kemur fram í tilkynningu, en um verður að ræða 27. verslun Krónunnar og sú tíunda á landsbyggðinni.

Fram kemur að markmið Krónunnar með nýrri verslun á Höfn sé að veita íbúum og gestum á svæðinu enn betri þjónustu og aðgengi að fjölbreyttu vöruúrvali á sem allra hagstæðasta verði. Þegar fram líða stundir verði einnig boðið upp á heimsendingaþjónustu innanbæjar og til nærliggjandi sveita.

„Okkur hjá Krónunni er sérstaklega kært að tryggja að landsmenn njóti sama úrvals á sama verði, óháð búsetu, hvort sem það er í gegnum Snjallverslun Krónunnar eða í hefðbundinni verslun. Með því að opna á Höfn gerum við íbúum kleift að fá þetta aðgengi og styrkjum um leið þjónustu okkar á landsbyggðinni. Við erum líka stolt af því að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu á Höfn og hlökkum til að leggja samfélaginu lið, meðal annars með því að skapa störf, auka fjölbreytni í vöruúrvali og bæta þjónustuna innan sveitarfélagsins,“ er haft eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar og Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Þá er haft eftir Sigurjóni Andréssyni bæjarstjóra að það sé mikið gleðiefni að fá Krónuna inn í samfélagið. „Ný verslun eykur fjölbreytni og tryggir samkeppni á matvörumarkaði, sem skiptir miklu fyrir íbúa og gesti. Verslunin rís við íbúðabyggðina þar sem ekið er inn í bæinn og verður norðan við nýtt og glæsilegt 200 íbúða hverfi sem tekur á sig mynd á næstu árum. Þetta er til marks um mikla uppbyggingu um allan Hornafjörð, bæði í dreifbýlinu og í þéttbýlinu hér á Höfn – og þann mikla kraft sem samfélagið býr yfir,“ segir Sigurjón.

Tölvugerð mynd af fyrirhugaðri verslun.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×