Selur Alvogen í Bandaríkjunum með samruna sem skapar risa á lyfjamarkaði Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 24. september 2025 08:55 Róbert Wessman segir að hér sé um að ræða spennandi skref fyrir bæði félög sem sé eðlilegt framhald af langvarandi samstarfi félaganna. Vísir/Vilhelm Aztiq, eignarhaldsfélag Róberts Wessman, og aðrir hluthafar í New Alvogen Group Holdings Inc. (NAGH), sem eiga lyfjafyrirtækið Alvogen US í Bandaríkjunum, hafa gengið að tilboði um kaup alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Lotus á öllu hlutafé í NAGH. Með viðskiptunum verður til eitt af tuttugu stærstu samheitalyfjafyrirtækjum í heimi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Aztiq, en auk eignarhaldsfélagsins sem stofnað var af Róberti Wessmann, eru helstu eigendur NAGH eignarhaldsfélögin CVC og Temasek. Metið á 250 milljarða „Með kaupum Lotus á Alvogen US verður til eitt af 20 stærstu samheitalyfjafyrirtækjum heims. Áætlaðar tekjur Lotus geta tvöfaldast við sameininguna. Sameinað félag er metið á um 250 milljarða króna,“ segir meðal annars í tilkynningunni, en það nemur rúmlega tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Við þetta tvöfaldist fjöldi þeirra lyfja sem Lotus er að þróa og verða þannig nærri hundrað. Með kaupunum fái Lotus aðgang að „sérhæfðu söluteymi og rótgróinni lyfjaverksmiðju í Bandaríkjunum, en verksmiðja Alvogen US í Norwich, New York fylki í Bandaríkjunum hefur verið vottuð um áratuga skeið af Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA),“ segir ennfremur í tilkynningunni. Opnar aðgang að nýjum mörkuðum Róbert Wessmann segir að hér sé um að ræða spennandi skref fyrir bæði félög sem sé eðlilegt framhald af langvarandi samstarfi félaganna. „Með kaupunum treystir Lotus stöðu sína á mörkuðum í Asíu og fær aukin tækifæri til að sækja fram í Bandaríkjunum. Lotus er með metnaðarfullar áætlanir um þróun nýrra lyfja, leyfissamninga og yfirtöku félaga. Alvogen fær einnig aðgengi að nýjum mörkuðum, meðal annars í Asíu og Eyjaálfu. Sameinað félag á eftir að geta vaxið hratt og skapað mikil verðmæti fyrir hluthafa um leið og það bætir lífsgæði sjúklinga um allan heim,“ er haft eftir Róberti Wessman, stofnanda og stjórnarformanni Aztiq í tilkynningunni. Það eru fjárfestingabankinn Jefferies og Rothschild & Co sem voru fjármálaráðgjafar hluthafa NAGH, en lögfræðistofan White & Case veitti lögfræðilega ráðgjöf að því er segir í tilkynningunni.
Kaup og sala fyrirtækja Lyf Bandaríkin Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira