Stutt í landsleiki en meiðsli Ísaks ekki sögð alvarleg Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2025 15:46 Ísak Bergmann Jóhannesson einbeittur í leiknum við Stuttgart í gær. Getty/Federico Gambarini Ísak Bergmann Jóhannesson fór meiddur af velli í leiknum með Köln gegn Stuttgart í gær, í þýsku 1. deildinni í fótbolta, nú þegar styttist í landsleikina mikilvægu við Úkraínu og Frakkland á Laugardalsvelli.
Samkvæmt þýskum miðlum eru meiðsli Ísaks ekki alvarleg. Það verði hins vegar að koma í ljós hvenær hann snúi aftur til æfinga og hvort að hann nái að spila næsta leik sem er við Hoffenheim á föstudagskvöld. Eftir leiki helgarinnar tekur við landsleikjahlé og ef Ísak hefur heilsu til verður hann mættur til móts við íslenska hópinn í Reykjavík á mánudaginn. Ísland tekur svo a móti Úkraínu á Laugardalsvelli föstudaginn 10. október og Frakklandi þremur dögum síðar, í leikjum sem ráða gríðarlega miklu um möguleika Íslands á að komast á HM næsta sumar. Ísak fór meiddur af velli á 74. mínútu í gær, skömmu áður en Stuttgart skoraði svo sigurmark sitt í 2-1 útisigri. Eftir að hann fór af velli kom sjúkraþjálfari til að vefja læri Skagamannsins á bekknum en eins og fyrr segir eru meiðsli hans ekki sögð alvarleg. Hákon og Albert heilir en beðið eftir Orra Vinur Ísaks og félagi á miðjunni í síðustu landsleikjum, Hákon Arnar Haraldsson, kom lítillega meiddur úr síðustu landsleikjum en er kominn aftur á fulla ferð með liði sínu Lille í Frakklandi. Albert Guðmundsson meiddist um leið og hann skoraði í leiknum gegn Aserbaísjan 5. september en er kominn á ferðina og lék 74 mínútur um helgina með Fiorentina gegn Pisa. Hann gæti svo mætt Roma á sunnudaginn áður en landsleikjahléið tekur við. Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson, sem missti af síðustu landsleikjum vegna meiðsla, er hins vegar ekki enn byrjaður að spila með Real Sociedad.
Þýski boltinn Landslið karla í fótbolta Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Sjá meira