Keith sagður kominn með nýja kærustu Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. október 2025 16:09 Samstarfsfélagarnir Keith og Maggie á tónleikum í Texas í apríl en sagan segir að þau séu mögulega meira en bara vinir. Getty Kántrísöngvarinn Keith Urban er sagður þegar kominn með nýja kærustu en eiginkona hans, Nicole Kidman, sótti um skilnað í vikunni eftir nítján ára hjónaband. Kærastan ku vera yngri kona úr kantrísenunni og hefur nafn gítarleikarans Maggie Baugh verið nefnt í því samhengi.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá því á mánudag, samkvæmt heimildum nokkurra heimildarmanna tengdum Nicole, að „allt bendi til þess að Keith sé með annarri konu“. Hins vegar voru heimildarmennirnir ekki vissir um tímasetningarnar í sambandi Urban, það er hvort hann hóf sambandið með nýju konunni fyrir eða eftir að hann skildi við Kidman að borði og sæng í júní. Sú ákvörðun var að frumkvæði Urban en Kidman vildi þá reyna að bjarga hjónabandinu. Sjá einnig: Nicole Kidman og Keith Urban hvort í sína átt Aðeins nokkrum klukkutímum eftir umfjöllun TMZ sótti Kidman um skilnað vegna „ósættanlegra erfiðleika“ og skrifuðu bæði Keith og Nicole undir pappírana sem innihélt meðal upplýsingar um ráðstöfun forsjár. Þá hafði skilnaður greinilega verið í bígerð í einhvern tíma því Keith hafði kvittað undir 29. ágúst og Nicole 6. september. Á þriðjudag fóru fjölmiðlar að kafa ofan í kaupmála hjónanna og fundu sérstaka kókaínklásúlu sem bendir til þess að Urban geti við skilnaðinn hagnast ríkulega á edrúmennsku sinni gegnum árin. Breytti textanum um Kidman fyrir nýja gítarleikarann Nú hafa netverjar grafið upp nýlegt myndband sem var tekið á tónleikum Urban aðeins nokkrum dögum fyrir skilnaðinn. Á tónleikunum er hann að syngja slagarann „The Fighter“ sem hann samdi til Nicole árið 2016 en er búinn að breyta textanum svo hann vísi í aðra konu. Keith og Nicole meðan allt lék í lyndi í maí.Getty/Gilbert Flores Upprunalegi textinn er „When they're tryna get to you, baby, I'll be the fighter“ eða „Þegar þau reyna að ná til þín, verð ég bardagamaðurinn“ en hann breytti honum í „When they’re tryna get to you, Maggie, I’ll be your guitar player“ eða „Þegar þau reyna að ná til þín, Maggie, verð ég gítarleikarinn þinn“. Maggie þessi er Maggie Baugh, nýi gítarleikari Urban sem er 25 ára gömul og er með honum á sviðinu í myndbandinu. Hún deildi sjálf myndbandinu á Instagram og skrifaði við það: „Sagði hann þetta virkilega 👀“. View this post on Instagram A post shared by Maggie Baugh (@maggie_baugh) Eldri klippur hafa síðan komið upp á yfirborðið þar sem má sjá Urban benda á Maggie meðan hann syngur „I was born to love you“ eða „Ég var fæddur til að elska þig“. Kemistrían milli þeirra tveggja er því töluverð. Slúðurfréttablaðamaðurinn Rob Shuter greindi síðan frá því í gær á bloggi sínu, ShuterScoop, að Nicole hafi viljað berjast fyrir hjónabandinu en það hvorki snúist um fjarlægðina milli þeirra, erfiða dagskrá eða slæma ávana heldur aðra konu. Enn fremur hafi Nicole vitað hver konan væri. Shuter greindi einnig frá því að Nicole væri sérstaklega sár út í vini Urban, þar á meðal kántrísöngvarann Blake Shelton, sem hún telur hafa vitað af framhjáhaldinu í dágóða stund, hylmt yfir það og þagað yfir því. Nú er spurning hvernig málum vindur fram, hvort Maggie þessi eða einhver önnur er nýja kærastan eða hvort allt þetta tal eru einfaldlega sögusagnir úr teymi Kidman. View this post on Instagram A post shared by Maggie Baugh (@maggie_baugh)
Ástin og lífið Hollywood Bandaríkin Tónlist Ástralía Skilnaður Nicole Kidman og Keith Urban Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira