Nafngreina árásarmanninn í Manchester Agnar Már Másson skrifar 2. október 2025 23:40 Friðþægingardagurinn er allrahelgasti dagur gyðinga. Getty Lögreglan í Manchester hefur nafngreint manninn sem réðst inn í bænahús gyðinga í Manchester í morgun og tók tvo af lífi.
Árásarmaðurinn hét Jihad Al-Shamie og var 35 ára Breti af sýrlenskum uppruna. Hann var felldur af lögreglu á vettvangi. Tveir karlmenn voru stungnir til bana og þrír til viðbótar eru alvarlega særðir en bænahúsið er við Middle Road í Crumpsall í Manchester. Lögregla skilgreinir árásina sem hryðjuverk og hefur aukinheldur gefið út að þrennt hafi verið handtekið til viðbótar í tengslum við árásina; tveir karlmenn á fertugsaldri og ein kona á sjötugsaldri. Breska ríkisútvarpið hefur eftir talsmanni bresku lögreglunnar að grunsamlegt tæki sem árásarmaðurinn virtist hafa klæðst hafi ekki reynst vera sprengja. Árásin gerist á friðþægingardegi, eða jom kippur, sem er allrahelgasti dagur gyðingdóms en hann er haldinn tíu dögum eftir nýársdag í hinu gyðinglega dagatali. Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur fordæmt árásina og þá hefur Karl Bretlandskonungur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsir yfir mikilli sorg vegna málsins.
Bretland Hryðjuverkastarfsemi England Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira