Hamasliðar tilbúnir að sleppa gíslum og láta völd af hendi Agnar Már Másson skrifar 3. október 2025 20:01 Hamasliðar segjast tilbúnir að leysa alla gísla, lifandi og látna, úr haldi. Vísir Hamassamtökin segjast tilbúin að leysa alla ísraelska gísla úr haldi gegn því að Ísraelar bindi enda á stríðið á Gasaströndinni og dragi her sinn að öllu leyti af svæðinu.
Þetta verði gert samkvæmt friðarplani Donalds Trumps Bandaríkjaforseta en samtökin gera samt nokkrar athugasemdir við áætlun forsetans. „Í þessu samhengi staðfestir hreyfingin vilja sinn til að fara beint í viðræður í gegnum milligöngumenn til að ræða smáatriðin í þessu samkomulagi,“ skrifa hryðjuverkasamtökin á Telegram að því er Al Jazeera greinir frá. Þar kom einnig fram að samtökin hefðu samþykkt að láta völd sín á Gasa af hendi til óháðrar palestínskrar stofnunar, „samkvæmt samþykki palestínsku þjóðarinnar og stuðningi araba- og íslamsríkja.“ Leiðtogar Hamas hafa áður sagst tilbúnir til að sleppa takinu á stjórnartaumunum á Gasa en hafa ekki viljað leggja niður vopn sín og ekkert um það kemur fram í þessari nýju yfirlýsingu. Trump hafði gefið leiðtogum Hamas frest til sunnudagskvölds til að samþykkja friðartillögur hans, annars stæðu þeir frammi fyrir helvíti á jörðu. Tillögur hans sem sneru að því að binda enda á átökin á Gasaströndinni þóttu að miklu leyti halla á Hamas en margar af þessum tillögum hafa sést áður í fyrri vopnahléstillögum á undanförnum tveimur árum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira