Farið yfir framboð hjá Miðflokknum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2025 13:40 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er og verður formaður Miðflokksins en ekki er útséð með það hver verður varaformaður. Vísir/Anton Brink Framboðsfrestur til embætta formanns, varaformanns og tveggja stjórnarmanna í Miðflokknum er runninn út. Landsþing flokksins fer fram næstu helgi á Hótel Hilton Reykjavík Nordica.
Í reglum flokksins er kveðið á um að framboðsfrestur sé til klukkan 12:00 árdegis sjö dögum fyrir upphaf landsþings en við sérstakar aðstæður er stjórn flokksins heimilt að stytta framboðsfrest niður í fimm daga. Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Braga Sveinssyni starfsmanni flokksins var sú heimild ekki nýtt og rann framboðsfrestur því út á laugardag. Þá segir hann að nú sé verið að fara yfir innkomin framboð. Á þessari stundu verði því ekki gefið upp hverjir hafi boðið sig fram til embættanna þriggja. Varaformannsslagur framundan Líkt og fram hefur komið er varaformannsslagur í uppsiglingu hjá flokknum. Þrír þingmenn hafa lýst yfir framboði til embættisins, þau Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir og Snorri Másson. Ekki er búist við öðru en að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verði endurkjörinn formaður en flokkurinn hefur ekki haft varaformann síðan embættið var lagt niður árið 2020, en nú verður embættið endurvakið. Fyrr í mánuðinum var ákvörðun um nýjan þingflokksformann frestað. Sagði Sigmundur Davíð það vera sökum kjördæmaviku. Ákvörðun yrði tekin þegar menn geti hists.
Miðflokkurinn Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira