Viðskipti innlent

Um­hverfis- og orku­stofnun sektar þrota­bú Play um 2,3 miljarða

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Ofan á kröfu um greiðslu upp á rúman milljarð vegna losunarheimilda bætist sekt frá Umhverfis- og orkustofnun upp á 2,3 milljarða króna. 
Ofan á kröfu um greiðslu upp á rúman milljarð vegna losunarheimilda bætist sekt frá Umhverfis- og orkustofnun upp á 2,3 milljarða króna.  Vísir/Egill

Umhverfis- og orkustofnun mun sekta þrotabú flugfélagsins Play um 2,3 milljarða vegna þess að félagið greiddi ekki losunarheimildir sem það skuldaði og voru á gjalddaga daginn eftir að tilkynnt var um gjaldþrot þess. 

Einar Halldórsson, teymisstjóri hjá teymi loftgæða og losunarheimilda hjá stofnuninni, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en mbl.is greindi fyrst frá. 

Með sektinni sé stofnunin að sinna skyldu sinni, en hún fer með framkvæmd laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir

„Okkur ber skylda að sekta þá flugrekstraraðila inni í kerfinu sem hafa ekki gert upp fyrir frestinn,“ segir Einar í samtali við fréttastofu. 

Eins og kunnugt er tilkynnti flugfélagið að starfsemi þess yrði hætt mánudagsmorguninn 29. september. Daginn eftir átti flugfélagið að standa skil á greiðslu vegna losunarheimilda fyrir rúman milljarð króna. Þann 30. september ár hvert þarf að gera upp vegna losunar síðasta almanaksárs.

Einar segir sektina nema hundrað evrum á hvert tonn sem ekki er gert upp og muni í heildina nema 2,3 milljörðum króna. Aðspurður hvort hann telji að sektin verði greidd segist Einar meðvitaður um að aðrar kröfur í þrotabúið gangi að öllum líkindum framar þessari. 

„Ef maður tekur mið af því sem gerðist í Wow air-málinu á sínum tíma þá er hvorki líklegt að það fáist nokkuð upp í skuldirnar né að það sé til fjármagn til að gera upp losunarheimildir miðað við aðrar kröfur,“ segir Einar. 

Eftir gjaldþrot Wow air var lögð stjórnvaldssekt á þrotabú félagsins upp á tæpa fjóra milljarða króna. Sektin var sú hæsta sem Umhverfisstofnun hafði lagt á. Landsréttur hafnaði kröfu stofnunarinnar um að þrotabúið greiddi sektina í lok 2020.

„En það liggur ljóst fyrir að okkur ber skylda til að leggja þessa sekt á,“ segir Einar og bendir á að sú skylda liggi enn á flugfélaginu að gera upp þær losunarheimildir sem voru á gjalddaga þann 30. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×