Gæti náð Liverpool-leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2025 19:15 Trent Alexander-Arnold kvaddi Liverpool sem Englandsmeistari. Getty/Liverpool FC Trent Alexander-Arnold fór frá Liverpool til Real Madrid í sumar eins og frægt var og auðvitað mættust liðin síðan í Meistaradeildinni. Það leit út fyrir að meiðsli enska bakvarðarins myndu taka frá honum leikinn en nú líta hlutirnir betur út.
Endurhæfing Trent Alexander-Arnold gengur samkvæmt áætlun og það eru líkur á að hægri bakvörður Real Madrid verði klár í slaginn gegn sínu gamla félagi í nóvember. Hinn 27 ára Trent meiddist aftan í læri í leik gegn franska liðinu Marseille í riðlakeppni keppninnar þann 16. september. Alexander-Arnold þurfti að fara af velli á fimmtu mínútu og heimildir hermdu á þeim tíma að hann gæti verið frá í allt að sex vikur. Real heimsækir Liverpool þann 4. nóvember í Meistaradeildinni sem er nákvæmlega sjö vikum eftir að meiðslin áttu sér stað. Heimildir BBC Sport herma að bati leikmannsins gangi vel og vonir standa til að Alexander-Arnold geti snúið aftur á Anfield í fyrsta sinn síðan hann gekk til liðs við spænska stórliðið í júní. Trent var Liverpool-stuðningsmaður frá blautu barnsbeini og sagði að það að yfirgefa félagið sem hann gekk til liðs við sex ára gamall í akademíunni hafi verið „erfiðasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tímann tekið“. Hún var líka afar óvinsæl hjá stuðningsmönnum Liverpool sem voru margir fljótir að líta á hann sem svikara. Alexander-Arnold lék 354 leiki fyrir Rauða herinn og vann meðal annars tvo enska úrvalsdeildartitla, einn Meistaradeildartitil og enska bikarinn. Frá því hann flutti til Madríd hefur Alexander-Arnold bara spilað fimm leiki fyrir félagið í öllum keppnum, samtals aðeins 156 mínútur.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Enski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira