Arsenal vann Lundúnaslaginn Siggeir Ævarsson skrifar 18. október 2025 16:00 Leandro Trossard fagnar marki sínu í dag ásamt liðsfélögum sínum Vísir/Getty Fulham og Arsenal áttust við í dag í ensku úrvalsdeildinni þar sem Skytturnar fóru með 0-1 sigur af hólmi og tóku öll stigin þrjú á Craven Cottage. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð tíðindalítill ef frá er talið mark sem Riccardo Calafiori skoraði en það var réttilega dæmt af sökum augljósrar rangstöðu. Gestirnir brutu ísinn á 58. mínútu þegar Gabriel fleytti hornspyrnu Saka áfram í teignum og boltinn féll fyrir fætur Leandro Trossard sem afgreiddi hann af öryggi í netið. Þetta reyndist eina mark leiksins og 0-1 sigur Arsenal staðreynd sem þýðir að liðið er eitt í toppsæti deildarinnar, þremur stigum á undan Manchester City og fjórum stigum á undan Liverpool sem mætir Manchester United á morgun. Enski boltinn Fótbolti