Takk Vigdís! Takk Guðni! Takk Halla! — Takk þjóð! Hjörtur Hjartarson skrifar 20. október 2025 12:02 Merkilegasta skjal í sögu Íslands bíður þess að verða virkjað. Nýja stjórnarskráin, sem svo er nefnd í daglegu tali, varð til í einu „víðtækasta og lýðræðislegasta stjórnarskrárferli sem vitað er um,“ eins og Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980-1996, komst að orði. Vigdís hélt áfram og sagði: „Að mínu mati hefur íslenska þjóðin beðið nógu lengi eftir nýrri stjórnarskrá.“ — Takk Vigdís! Núverandi forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, talaði í framboði sínu á svipuðum nótum og Vigdís: „... ég held að það myndi hjálpa okkur að byggja upp traust í samfélaginu ef við myndum virða þetta fallega ferli sem, að mínu mati, fer af stað 2009 og heldur svo áfram með þjóðinni.“ — Takk Halla! Við blasir tækifæri fyrir nýtt fólk á valdastólum til að ganga hreint til verks, af hugrekki og heilindum og ljúka þessu fallega ferli. Það yrði mikil blessun fyrir íslenskt samfélag. Hrunið á Íslandi árið 2008 var með stórum staf. Ekki aðeins bankarnir hrundu til grunna, heldur varð hér pólitískt og siðferðilegt hrun. Almenningur gerði uppreisn og hrakti ríkisstjórn frá völdum með miklum látum, en það var aðeins fyrsta vers. Fólkið í landinu átti líka friðsamlegt, uppörvandi og skapandi svar við Hruninu. Það samdi sér nýja stjórnarskrá. Fyrir það á fólkið skilið virðingu en ekki óheilindi. — Takk þjóð! Alþingi ályktaði einum rómi 2010, með öllum 63 atkvæðum greiddum, „að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur.“ Það voru viðbrögð þingsins við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Í þessari sömu þingsályktun kom fram að endurskoða skyldi stjórnarskrá landsins. Fyrirheit um það höfðu reyndar verið gefin almenningi við stofnun lýðveldisins 1944 en ekki var staðið við þau, líkt og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands 2016-2024, hefur rakið skilmerkilega. — Takk Guðni! Til að gera langa sögu stutta, þá fól Alþingi almennum borgurum, í gegnum svokallað stjórnlagaráð, að koma með tillögu að nýrri og endurskoðaðri stjórnarskrá. Þar með var hafið það ferli sem Vigdís nefnir „víðtækasta og lýðræðislegasta stjórnarskrárferli sem vitað er um.“ Og Vigdís var alls ekki ein um þá skoðun. Margir helstu stjórnlagafræðingar heimsins voru sama sinnis og fóru líka lofsamlegum orðum um niðurstöðu ferlisins, nýju stjórnarskrána. Alþingi fékk umbeðna tillögu að nýrri og endurskoðaðri stjórnarskrá afhenta á tilsettum tíma frá stjórnlagaráðinu. Það var sumarið 2011. Alþingi boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillöguna 20. október 2012. Yfir 2/3 hlutar kjósenda (66,9%) samþykktu að tillagan sem fyrir þá var lögð skyldi verða grundvöllur nýrrar stjórnarskrár landsins. Alþingi hefur ekki enn virt úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um nýja stjórnarskrá. Til samanburðar má nefna að níu mánuðum eftir ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um Brexit, úrsögn Bretlands úr ESB, hafði breska þingið staðfest naum úrslit atkvæðagreiðslunnar, jafnvel þótt meiri hluti þingsins væri í raun andsnúinn niðurstöðunni. — Í lýðræðisríkjum verður að virða úrslit kosninga. Í áðurnefndri þingsályktun frá 2010 sagði einnig: „Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu ... .“ Svo virðist sem enn vanti upp á lærdóminn af hruninu. Góðu fréttirnar eru þær að það er aldrei of seint að bæta ráð sitt, en þörfin á því er orðin knýjandi. „Stjórnarskrár eiga að vera skýrar en þannig er bráðabirgðasmíðin frá1944 ekki, enda hefur hún engum orðið fyrirmynd og engin áhrif haft annars staðar í heiminum.“ Guðni Th. Jóhannesson er ekki einn um þessa skoðun. Þessir veikleikar stjórnarskrárinnar eru á allra vitorði. Við búum við úrelta stjórnarskrá þótt við eigum aðra nútímalega og næstum fullfrágengna. Þögnin um þá staðreynd lætur hátt í eyrum og stundum er hún næstum hlægileg. En stundum minna fyndin. Það vekur vonir hjá fólki að komin skuli til valda ríkisstjórn sem virðist þora að standa með þjóðinni, með hagsmunum almennings gegn sérhagsmunum. Nýlega samþykkt breyting á lögum um veiðigjald vitnar um það og er mikilvægur áfangi á leið fólksins í landinu til yfirráða yfir fiskveiðiauðlind sinni. Áform ríkisstjórnarinnar um auðlindaákvæði í stjórnarskrá verða að ná fram að ganga ef tryggja á þjóðinni varanleg yfirráð yfir auðlindum sínum og réttlátan arð af þeim. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru fljótir til eftir alþingiskosningar 2013 og lækkuðu veiðigjöldin. Sú saga mun endurtaka sig ef núverandi meirihluti á Alþingi sér ekki til þess að réttur almennings verði varinn í stjórnarskrá. Margt knýr á um stjórnarskrárbreytingar. Hvar erum við stödd með okkar lýðræði? Ef Alþingi virðir ekki úrslit þjóðar–atkvæðagreiðslu sem það boðaði til um nýja stjórnarskrá, hvað er þá að marka þjóðaratkvæðagreiðslu sem það boðar til um framhald aðildarviðræðna við ESB? Viðræður um aðild að ESB ætti ekki að hefja á ný fyrr en búið verður að tryggja óskoruð yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum landsins í stjórnarskrá. Fáir munu láta segja sér að það skipti ekki máli. Landskjörstjórn kallar eftir margvíslegum stjórnarskrárbreytingum á kosninga–ákvæðum í stjórnarskrá og segir brýnt að bregðast við dómi Mannréttinda–dómstóls Evrópu frá 2024 um brot Íslands gegn réttinum til frjálsra kosninga. Ef kjósendur eiga að geta neytt réttar síns og greitt atkvæði með eða á móti inngöngu í ESB, ef til þess kemur, þarf að breyta stjórnarskrá. Tekið er á öllum ofangreindum atriðum í nýju stjórnarskránni. Tillögurnar sem samþykktar voru í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 fela í sér vandlega uppfærða, nútímalega og heildstæða stjórnarskrá sem samin var af landsmönnum sjálfum. Og Alþingi er komið langleiðina í mark. Í október 2020 lögðu þingmenn Pírata og Samfylkingar fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá, samhljóða frumvarpi því sem lá fyrir þaulunnið og fullfrágengið af hálfu Alþingis í mars 2013, en með ítarlegri greinargerð. Töldu flutningsmenn að með framlagningu frumvarpsins mætti með réttum hætti halda áfram og ljúka vinnu við frumvarpið. Stjórnarskrármálið er því ekki á byrjunarreit heldur nálægt lokametrunum. „Þetta er handónýt stjórnskipun að hluta,“ sagði Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og lengi kennari í stjórnskipunarrétti, í mjög merkilegu sjónvarpsviðtali skömmu eftir hrun. Þá var stund sannleikans. Við sitjum enn uppi með þessa ónýtu stjórnskipun. Eiríkur sagði það standa landinu fyrir þrifum að búa við úrelta stjórnarskrá og spurði: „Við hvað eru menn alltaf svona hræddir hér á Íslandi?“ Í stjórnmálum landsins blasir við sögulegt tækifæri til að hugsa stórt, sýna hugrekki og framsýni og leggja lokahönd á samþykktar tillögur að nýrri stjórnarskrá. Afgreiða þær af virðingu við kjósendur og lýðræðislega niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012. Það mætti til dæmis gera með slembivöldu stjórnlagaþingi. Stjórnarskrárfélagið hefur í þessu sambandi talað um Ragnars-prófið, viðmið um verklag sem Ragnar Aðalsteinsson lögmaður útlistaði svo: „Ákvæði Stjórnlagaráðs var samið af óháðum og sjálfstæðum fulltrúum, sem þjóðin hafði til þess kjörið, og Alþingi svo skipað eftir ógildingu Hæstaréttar á grundvelli formsatriða. Ráðið vann verkefnið fyrir opnum tjöldum og tók sjónarmiðum almennings opnum örmum og gaumgæfði þau. Ráðsmenn komust að sameigin–legum niðurstöðum um efni og orðalag nýrrar stjórnarskrár fyrir landið. Stjórnar–skrárfrumvarpið var þannig samið á lýðræðislegan hátt. Þeim, sem hafa hug á að endursemja og breyta tillögum ráðsins, er vandi á höndum, því færa má að því rök að þeir, sem það reyna, verði að færa á það ótvíræðar sönnur að breytingartillögur þeirra séu betur til þess fallnar að treysta almannahag en tillögur ráðsins.“ Tilmæli Feneyjanefndar Evrópuráðsins til íslenskra stjórnvalda haustið 2020 ríma við verklagið sem Ragnar leggur til og forsendurnar eru þær sömu. Nefndin segir að yrði vikið efnislega frá því sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 þyrftu stjórnvöld að gefa almenningi gegnsæjar, skýrar og sannfærandi ástæður fyrir því. Þetta er einföld, sanngjörn og lýðræðisleg forskskrift. Fátt er dýrmætara í stjórnmálum en að þekkja sinn vitjunartíma. Nú er runninn upp sá tími hjá þingmönnum og ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Sýnið hugrekki og takið til við stjórnarskrármálið af heilindum. Ljúkið því fallega. Þið munið hrífa þjóðina með ykkur. Höfundur er í stjórn Stjórnarskrárfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur Hjartarson Stjórnarskrá Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun