Allt undir hjá forsetanum hárprúða Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. október 2025 18:52 Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hótað að skera á lánalínurnar til Argentínu bæti Milei ekki við sig þingsætum. AP Argentínumenn ganga í dag til þingkosninga sem taldar eru prófsteinn fyrir Javier Milei, hinn hárprúða forseta landsins. Róttæk frjálshyggja hans er undir í kosningunum enda hægara sagt en gert að koma stefnumálum sínum í gegn án fleiri sæta í þinginu.
Kosið er um helming þingsæta í neðri deild argentínska þingsins og þriðjung sæta í öldungadeildinni. Í dag er Frelsisframsóknarflokkur Milei í minnihluta í báðum deildum en þar sem í Argentínu er forsetaræði er flokkurinn í ríkisstjórn. Róttæk „raflostsmeðferð“ ríkisstjórnar Milei á efnahagi landsins hefur fengið misjafnar móttökur. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur einnig hækkað þrýstinginn á forsetann enn frekar en Bandaríkjastjórn hefur stutt við róttæka sýn Milei með tugmilljarða dala fjárútlátum. Gangi Milei hins vegar illa í kosningunum, hefur Donald Trump sagst munu skera á lánveitinguna. Markmið Milei er að hans sögn að fá um þriðjung sæta í báðum deildum og yfirlýsingar Trump Bandaríkjaforseta hafa verið túlkaðar sem tilraun til að hvetja Argentínumenn til að fylkja sér á bak við forsetann. „Ekki gefast upp því við erum komin hálfa leið. Við erum á góðri vegferð,“ sagði Milei þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í Rosario-borg á kosningafundi á dögunum, að því er Reuters greinir frá. Í tíð sinni í embætti hefur Milei tekist að draga úr verðbólgu í Argentínu sem hefur lengi verið ein sú mesta í heimi. Niðurskurðarstefna hans hefur valdið því að efnahagur margra Argentínumanna hefur margbatnað en annarra versnað svo um munar. Kjörstaðir loka klukkan níu og fyrstu niðurstæðna er að vænta upp úr miðnætti að íslenskum tíma.
Argentína Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira