Högnuðust um tæpa sjö milljarða Jón Ísak Ragnarsson skrifar 30. október 2025 18:29 Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 6,9 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2025. Arðsemi eign fjár var 12,2 prósent á ársgrundvelli, en var 12,9 prósent þegar leiðrétt er vegna varúðarfærslu vegna dómsmála.
Í tilkynningu bankans til Kauphallar segir að hreinar vaxtatekjur hafi numið 13,3 milljörðum króna á ársfjórðunginum, og hafi hækkað um 1.483 milljónir króna frá sama ársfjórðungi í fyrra. Kostnaðarhlutfall bankans hafi verið 38,2 prósent á þriðja ársfjórðungi, en þar séu undanskildar 550 milljónir króna innan vaxtaliðar sem varúðarfærslu vegna dómsmála. Útlán til viðskiptavina hafi aukist um tvo milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2025 frá öðrum ársfjórðungi 2025, og hafi verið 1.333 milljarðar króna í lok ársfjórðungsins. Eigið fé hafi numið 227 milljörðum króna, samanborið við 227,4 milljarða í lok árs 2024. Reksturinn með ágætum Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir að rekstur bankans á þriðja ársfjórðungi hafi verið með ágætum og rekja megi sterka afkomu bankans til góðs árangurs þvert á viðskiptaeiningar. „Hagnaður af rekstri bankans nam 6,9 milljörðum króna sem er yfir spám greinenda fyrir fjórðunginn. Vaxtamunur var 3,1% á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár á fjórðungnum var 12,2% á ársgrundvelli og kostnaðarhlutfallið var 38,2% á fjórðungnum.“ „Síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar í rekstri bankans. Tilkynning um samrunaviðræður Íslandsbanka og Skaga hf. er fyrsta skrefið í spennandi vegferð og er í takt við það sem bankinn hefur sagt undanfarin misseri um ytri vöxt. Við sjáum mikil tækifæri í samruna félaganna tveggja og ljóst er að samlegðin er talsverð.“ „Tækifæri til samþættingar innan íslenska fjármálakerfisins eru fjölmörg og teljum við að samruni Íslandsbanka og Skaga geti skapað veruleg verðmæti fyrir sameinað félag, viðskiptavini þess og aðra hagsmunaaðila. Þá hefur samstarf bankans við VÍS (dótturfélag Skaga) gengið afar vel og mikil ánægja meðal viðskiptavina og starfsfólks með samstarfið.“ „Í október kvað Hæstiréttur Íslands upp dóm í máli um breytilega vexti á óverðtryggðu fasteignaláni. Hæstiréttur ógilti skilmála bankans um vaxtabreytingar að hluta. Unnið er að því að greina til fulls áhrif dómsins og mun bankinn hafa frumkvæði að því að hafa samband við viðskiptavini þegar niðurstöður liggja fyrir,“ er haft eftir Jóni í tilkynningu.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira