„Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. október 2025 21:14 Finnur Freyr Stefánsson er þjálfari Vals. Vísir / Guðmundur „Það er voða lítið hægt að segja. Þetta var bara arfaslök frammistaða af okkar hálfu,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, eftir stórt tap liðsins gegn Grindvíkingum í kvöld.
Valsmenn sáu aldrei til sólar er liðið fékk Grindavík í heimsókn í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld og máttu að lokum þola 35 stiga tap, 55-90. „Grindavík er með hörkulið og mjög góðar viðbætur sem komu í liðið frá því í fyrra. En við létum þá líta helvíti vel út varnarlega með lélegum sóknarleik og heimskulegum ákvörðunum.“ Sóknarleikur Vals var hvorki fugl né fiskur í kvöld og það var í raun lítið sem gekk upp hjá liðinu. Valsmenn skoruðu aðeins úr einu af fyrstu átta vítaskotum sínum og tapaðir boltar voru 26 talsins hjá liðinu. „Þetta var bara arfaslök frammistaða frá a-ö og við byrjum þennan leik illa. Við erum andlausir og förum að væla og þeir bara ganga á lagið. Við lendum bara í einhverri holu sem við komumst aldrei upp úr. Þetta var slök frammistaða og ekki í takt við það sem við ætluðum að gera.“ Finnur segir þó að þessi frammistaða eigi ekki eftir að sitja lengi í liðinu. „Við þurfum bara að æfa vel og mæta í næsta leik. Þetta er bara sama tuggan hvort sem þú vinnur eða tapar. Við verðum að skilja við þennan leik og læra af honum. Nú erum við búnir að sýna hvað við getum verið lélegir, en nú verðum við bara að mæta í næsta leik af meiri krafti og læra af þessu. Við getum ekki breytt úrslitum þessa leiks, en ég ætla að vona að frammistaðan í næsta leik verði betri,“ sagði Finnur að lokum.
Bónus-deild karla Valur UMF Grindavík Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira