Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Oddur Ævar Gunnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 3. nóvember 2025 18:59 Agnes Ósk Marzellíusardóttir lögreglufulltrúi segir málið umfangsmikið og óvenjulegt. Meðal þess sem lögregla hefur haldlagt vegna umfangsmikils fjársvikamáls þar sem hundruðum milljóna var stolið af íslenskum bönkum eru bílar og rafmyntir. Ekki er útilokað að upphæðirnar reynist hærri en talið var í fyrstu. Þetta er meðal þess sem kom fram í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld.
Greint var frá því á Vísi í dag að lögregla hafi nú til rannsóknar fjársvik upp á um fjögur hundruð milljónir króna af íslensku bönkunum. Fimm eru í farbanni vegna málsins en einstaklingum tókst að millifæra háar upphæðir af eigin reikningum án þess að inneign væri til staðar vegna galla hjá Reiknistofu bankanna. Málið uppgötvaðist hjá Landsbankanum á föstudaginn en það rataði á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á laugardaginn. Agnes Ósk Marzellíusardóttir lögreglufulltrúi hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu segir í kvöldfréttum Sýnar að lögregla hafi kært úrskurð héraðsdóms sem hafnaði gæsluvarðhaldskröfu lögreglu. Óvenjulegt og mjög umfangsmikið mál „Það var strax ljóst að það væri umfangsmikið, þannig við hófumst strax handa í að reyna að kanna það hvort við gætum endurheimt eitthvað. Okkur hefur tekist það upp að einhverju marki. Við fórum fram á gæsluvarðhaldsúrskurð yfir fimm aðilum. Því var hafnað af héraðsdómi en sá úrskurður hefur verið kærður.“ Hún segir lögreglu hafa grunsemdir um að mennirnir fimm sem eru í haldi tengist, það sé til rannsóknar. Það sé til rannsóknar hvernig þeir hafi nýtt sér glufur í kerfinu. Hvað er það sem þið hafið lagt hald á, það er talað um fjögur hundruð milljónir? „Já, þetta eru um fjögur hundruð milljónir en ég er ekki með það nákvæmlega hversu há þessi upphæð er, en hún er í formi bifreiða, þetta er í formi rafmynta og svo að sjálfsögðu bara reiðufé.“ Agnes segir töluverða vinnu framundan hjá lögreglu. Hún hafi því talið nauðsynlegt að kæra úrskurð héraðsdóms. Teljið þið að þetta geti jafnvel verið enn hærri fjárhæðir? „Við bara hreinlega vitum það ekki. Það verður bara tíminn að leiða í ljós og bankar að skoða sín mál.“ Er þetta ekki óvenjulegt? „Þetta er óvenjulegt og mjög umfangsmikið.“
Fjármálafyrirtæki Netöryggi Landsbankinn Lögreglumál Sviku milljónir af Landsbankanum Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira