Sýn tapaði 239 milljónum Samúel Karl Ólason skrifar 5. nóvember 2025 17:21 Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri Sýnar. Vísir/Anton Sýn tapaði 239 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi, sem forstjórinn segir hafa verið krefjandi. Fyrirtækið hagnaðist um sautján milljónir á sama tímabili í fyrra en tekjur lækkuðu um 1,6 prósent á milli ára.
Í yfirlýsingu vegna ársfjórðungsuppgjörs Sýnar segir að tekjusamdráttinn megi að mestu skýra með einskiptisáhrifum af yfirfærslu viðskiptavina í nýtt vöruframboð á haustmánuðum. Það hafi haft neikvæð áhrif á tekjur af sjónvarpsáskriftum og heimatengingum um níutíu milljónir króna. Þar að auki hafi bókfærðar tekjur vegna fjölmiðlastyrks verið 124 milljónir á sama tímabili í fyrra en styrkurinn hafi ekki verið til staðar á þessu ári. Á árinu hefur Sýn tapað 757 milljónum króna. Áhugasamir geta séð frekari og tæknilegri upplýsingar hér. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri Sýnar, segir að þó fjórðungurinn hafi verið krefjandi sjáist nú merki um viðsnúning. „Samningurinn við Nova um framsal 4G- og 5G-dreifikerfa til Sendafélagsins er lykilskref sem lækkar fjárfestingaþörf, bætir nýtingu innviða og styrkir sjóðstreymi. Tekjur og EBIT hafa dregist saman á þriðja ársfjórðungi en EBITDAaL er í jafnvægi og rekstrargrundvöllurinn að styrkjast. Við höldum áfram að aðlaga okkur að breyttu rekstrarumhverfi með því að einfalda starfsemina, bæta þjónustu, nýta tækifæri og mæta áskorunum sem felast í hraðri tækniþróun og breyttum neysluvenjum. Samhliða er unnið að endurskoðun á rekstrarmódeli fjölmiðla.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira