Óða boðflennan fangelsuð Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. nóvember 2025 10:52 Johnson Wen hljóp upp að tónlistarkonunni Ariönu Grande og tók utan um hana. Fyrir það hlaut hann níu daga dóm. Getty Maður sem óð upp að tónlistarkonunni Ariönu Grande á kvikmyndafrumsýningu í Singapúr og tók utan um hana hefur verið dæmdur í níu daga fangelsi fyrir að vera með ólæti á almannafæri. Hann hefur ítrekað framkvæmt sambærilega gjörninga en aldrei áður hlotið fangelsisdóm.
Johnson Wen, 26 ára Ástrali, hefur gert það að eins konar hobbíi að hlaupa upp á svið á tónleikum, íþróttaviðburðum eða frumsýningum og vera þar til trafala. Nýjasti gjörningur Wen átti sér stað þegar söngleikjamyndin Wicked: For Good var frumsýnd 13. nóvember í Singapúr. Hann stökk þá yfir girðingu, hljóp upp að annarri aðalleikkonu myndarinanar Ariönu Grande, tók utan um hana og hoppaði við hlið hennar. Cynthia Erivo, mótleikkona Grande, ýtti Wen í burtu áður en öryggisverðir handsömuðu hann. Hann reyndi síðan að klifra aftur yfir grindverkið en var þá rekinn á brott. Seinna sama kvöld var Wen handtekinn við hið fjölfarna Temple-stræti og hefur verið í haldi síðan. Þoldi loks afleiðingar gjörða sinna Wen fór fyrir dómara um helgina og krafðist saksóknari viku fangelsis fyrir verknaðinn. Nefndi hann að Wen væri „rað-boðflenna“ og auglýsti gjörninga sína á netinu til að afla sér vinsælda. Þegar dómarinn spurði Wen hvort hann hefði eitthvað að segja dómnum til mildunar, sagðist hann ekki mundu gera neitt slíkt aftur. „Er þetta bara í orði en ekki á borði eða er það raunveruleg ætlun þín?“ ku dómarinn hafa spurt. „Já, ég ætla að hætta,“ á Wen þá að hafa sagt. Dómarinn dæmdi Wen í níu daga fangelsi og benti á að Wen hefði aldrei áður þurft að takast á við afleiðingar gjörða sinna. „Þú virðist vera athyglissjúkur, hugsar bara um sjálfan þig og ekki um öryggi annarra,“ sagði dómarinn um gjörðir Wen. Svo dæmdi hann Wen í níu daga fangelsi fyrir ólæti á almannafæri. Ekki liggur fyrir hvort Wen var einnig gert að greiða sekt.
Singapúr Hollywood Dómsmál Ástralía Tengdar fréttir Æstur aðdáandi óð í Grande Ástralskur aðdáandi óð upp að söng- og leikkonunni Ariönu Grande og tók utan um hana í Singapore í gær. Cynthia Erivo, mótleikkona Grande, kom henni til varnar og ýtti manninum frá áður en hann var fjarlægður af vettvangi. Maðurinn gerir markvisst út á það að ryðjast upp á svið til tónlistarmanna eða inn á íþróttaviðburði. 14. nóvember 2025 10:50 Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Keppast um að minnast Stewarts Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira
Æstur aðdáandi óð í Grande Ástralskur aðdáandi óð upp að söng- og leikkonunni Ariönu Grande og tók utan um hana í Singapore í gær. Cynthia Erivo, mótleikkona Grande, kom henni til varnar og ýtti manninum frá áður en hann var fjarlægður af vettvangi. Maðurinn gerir markvisst út á það að ryðjast upp á svið til tónlistarmanna eða inn á íþróttaviðburði. 14. nóvember 2025 10:50