Þráhyggjuhegðunin staðið í fjórtán ár Atli Ísleifsson skrifar 26. nóvember 2025 11:22 Dómurinn féll í síðasta mánuði en hefur nú verið birtur. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í níu mánaða fangelsi fyrir brot gegn nálgunarbanni og umsáturseinelti gegn konu. Þráhyggja mannsins gagnvart konunni hefur staðið í fjórtán ár.
Þetta kemur fram í nýbirtum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í síðasta mánuði. Í dómnum segir að maðurinn hafi margendurtekið brot gegn nálgunarbanni á þessum fjórtán árum og að háttsemi mannsins hafi haft veruleg áhrif á líðan og lífsgæði konunnar. Enn fremur segir að þrátt fyrir að manninum hafi verið gerðar ljósar alvarlegar afleiðingar háttsemi sinnar á líf konunnar og þrátt fyrir að hann hafi leitað sér faglegrar aðstoðar við þráhyggjunni þá hefur hann ekki látið sér segjast. Maðurinn var nú ákærður fyrir að hafa sett sig í samband við konuna með því að hringja í síma hennar í byrjun ágústmánaðar og senda sms-skilaboð í síma hennar, þrátt fyrir að honum hafi í maí síðastliðinn verið gert að sæta nálgunarbanni allt til 29. janúar næstkomandi. Hafi honum verið bannað að veita konunni eftirför, nálgast hana á almannafæri eða setja sig í samband við hana með öðrum hætti. Með brotum sínum rauf maðurinn skilorð vegna fyrri dóms frá 2024 sökum brots gegn nálgunarbanni. Hann hafði sömuleiðis hlotið dóm vegna sambærilegs brots árið 2018. Maðurinn játaði brot sín skýlaust og samþykkti hann greiðslu 350 þúsund króna í miskabætur. Dómari mat hæfilega refsingu í málinu vera níu mánaða fangelsi og þótti ekki fært að skilorðsbinda refsinguna að öllu leyti. Skal þannig fresta fullnustu sex mánaða refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum, haldi maðurinn almennt skilorð.
Dómsmál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira