Félögin þeirra högnuðust mest Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 3. desember 2025 19:30 Félög þessara lista- og fjölmiðlamanna rötuðu á lista Viðskiptablaðsins yfir sameignar- og samlagsfélög sem högnuðust mest í fyrra. Vísir Félög Víkings Heiðars Ólafssonar, Hjörvars Hafliðasonar, Ara Eldjárn og fleiri lista- og fjölmiðlamanna eru meðal samlags- og sameignarfélaga sem skiluðu tugmilljóna króna hagnaði í fyrra.
Frá þessu er greint í samantekt Viðskiptablaðsins yfir þau samlags- og sameignarfélög sem högnuðust mest árið 2024. Í samantektinni eru meðal annars listar yfir lögmannsstofur, lækna, tannlækna og verktaka. Á lista yfir hagnað og launagreiðslur félaga í eigu lista- og fjölmiðlamanna kennir ýmissa grasa. Dirrindí, félag Víkings Heiðars Ólafssonar og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur, trónir á toppnum en félagið skilaði 120 milljón króna hagnaði í fyrra og greiddi tólf milljónir í launagreiðslur. Doc Media slf., félag Hjörvars Hafliðasonar, er næstefst á lista með 52 milljónir í hagnað og 11 milljónir í launagreiðslur í fyrra. Jónsson-bræður nánast jafnir Félag Ara Eldjárn, Þolmynd slf., er skammt undan, skilaði 49 milljónum króna í hagnað og greiddi út átján milljónir króna í laun árið 2024. Bjarthöfði slf., félag Sólmundar Hólm, kollega hans, hagnaðist um 35 milljónir í fyrra og greiddi út 14 milljónir í laun. Ætla má að þokkalegur hluti hagnaðar félaganna stafi af árlegu Áramótaskopi Ara og grínsýningunni Jóla Hólm en miðar á sýningarnar hafa selst í þúsundavís undanfarin ár. ÁKM slf., félag í eigu Bubba Morthens og Hrafnhildar Hafsteinsdóttur, eiginkonu hans, hagnaðist um 32 milljónir í fyrra og greiddi tólf milljónir í laun. Tónlistarbræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir eru hlið við hlið á listanum með félögin JJMusic slf. og Saltprinsinn slf. en hvort tveggja greiddi út tíu milljónir króna í laun. Félag Jóns hagnaðist um 25 milljónir í fyrra en félag Friðriks 22 milljónir. Samantektir yfir hagnaðarmestu samlags- og sameignarfélögin eftir stéttum má nálgast á vef Viðskiptablaðsins.
Tekjur Tónlist Grín og gaman Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira