Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Kjartan Kjartansson skrifar 8. desember 2025 13:50 Tveggja hæða gistihús fyrirtækisins Arctic Hotels byrjuðu að rísa við Skaftafell í lok nóvember. Leyfi er til að reisa sjötíu hús af þessu tagi á svæðinu. Jón Ágúst Guðjónsson Nágranni þjóðgarðsins í Skaftafelli furðar sig á því að sveitarstjórnin í Hornafirði hafi gefið grænt ljós á tugi tveggja hæða gistihúsa fyrir neðan hann. Upphaflega áttu húsin að vera helmingi færri.
Gistihúsin og lóðirnar sem þau standa á eru í eigu Arctic Circle Hotels sem tengist Arctic Adventures, einu stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins. Þau rísa á jörðunum Skaftafelli III og IV. Jón Ágúst Guðjónsson á Skaftafelli II segir að sér hafi verið verulega brugðið þegar hann sá húsin spretta upp í lok nóvember. Hingað til hafi gengið ágætlega að byggja í sátt við umhverfið á svæðinu. „Ég held að enginn hafi áttað sig á að þetta stæði til og að þetta yrði svona úr öllum dúr við það sem hefur verið gert hingað til,“ segir Jón Ágúst við Vísi en hann býst við því að íbúar á svæðinu fundi um framkvæmdirnar á næstunni. Gistihúsin sem eru byrjuð að rísa við Skaftafell eru þegar byrjuð að hafa veruleg áhrif á útsýni frá þjóðvegi 1. Jón Ágúst áætlar að um tíu hús séu komin upp en þau gætu orðið allt að sjöfalt fleiri.Jón Ágúst Guðjónsson Samþykktu tvöfalt fleiri hús Þegar hugmyndir um gistihúsabyggðina voru fyrst kynntar var talað um að þarna gætu risið 35 lítil gistihús á einni hæð. Fyrir tveimur árum var svo farið fram á möguleikann að fjölga húsunum úr 35 í sjötíu. Bæjaryfirvöld í Hornafirði samþykktu breytingarnar á skipulagi í fyrra. Þær fólust í að veita heimild fyrir sama byggingarmagni á jörðinni Skaftafelli IV og þegar lá fyrir á Skaftafelli III frá tíð fyrri sveitarstjórnar. Teikning sem á að sýna ásýnd gistihúsanna við Skaftafell. Horft er yfir hringveginn í áttina að Skaftafelli. Einnig var samþykkt að bæta við svölum á svefnloftin og samþykkti sveitarstjórnin að hvorki þyrfti að breyta deiliskipulagi né halda grenndarkynningu vegna þess að þær breytingar væru óverulegar. Þótt húsin séu nú á tveimur hæðum í stað einnar er hæð og fermetrafjöldi þeirra óbreyttur frá upphaflegum áætlunum. Þau mega vera að hámarki sex metra há og fjörutíu fermetrar að grunnfleti með 24 fermetra svefnlofti. Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri í Hornafirði, segir hæðarmörkin hafa verið sett til þess að halda byggðinni lágreistri og takmarka sjónræn áhrif í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Kröfur um byggingarefni, útlit og litaval bygginganna eigi ennfremur að láta þau falla sem best að umhverfi og landslagi. Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Hornafjarðar.Bjarni Einarsson „Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að mannvirki koma oft mjög afgerandi út á meðan á byggingu þeirra stendur. Á þessu stigi vantar lokafrágang húsa, yfirborðsmeðferð, litaval og umhverfisfrágang, auk þess sem vinnusvæði, jarðrask og vinnuvélar ýkja áhrif framkvæmdanna í opnu landslagi,“ segir bæjarstjórinn. Gert sé ráð fyrir að þegar framkvæmdum ljúki og húsin taki á sig sinn endanlega búning falli þau mun betur að umhverfinu en nú virðist. Vill ekki slíkar byggingar við hvern jökulsporð Jón Ágúst á Skaftafelli II segir enga grenndarkynningu hafa farið fram. Íbúar hafi ekki vitað af því sem til stæði fyrr en húsin byrjuðu að birtast. „Við viljum ekki að menn fari að setja svona byggingar sem falla ekki inn í umhverfið við hvern jökulsporð og þetta einstaka landslag sem er hér í rauninni á heimsvísu, að það sé ekki borin meiri virðing fyrir því,“ segir hann. Gistihúsin eiga að standa í sex klösum með tíu til þrettán húsum hver. Þrettán hús rísa nú í fyrsta áfanga en óvíst er hvort og hvenær fleiri hús verða byggð.Jón Ágúst Guðjónsson „Þetta er ekki bara svæði okkar íbúanna hérna. Fyrir mér er þetta ein af náttúruperlum Íslands og heimsins þannig séð. Mér finnst mjög alvarlegt þegar menn gera þetta.“ Kynnt í tíu vikur Sigurjón bæjarstjóri segir að framkvæmdirnar hafi farið í fullt kynningar- og umsagnarferli líkt og um nýtt deiliskipulag hefði verið að ræða. Því hafi grenndarkynning ekki átt við samkvæmt skipulagslögum. Alls hafi kynning og umsagnarfrestur sem var gefinn staðið í tíu vikur frá desember 2023 til maí 2024. Öll gögn um framkvæmdirnar hafi verið aðgengileg á vef Hornafjarðar og í skipulagsgátt. Bæjarstjórinn segir sitt persónulega álit á fagurfræði byggðarinnar ekki hafa þýðingu um ákvörðunina um að leyfa hana. „Það sem skiptir máli er að uppbyggingin samræmist samþykktu skipulagi og settum skilmálum,“ segir hann í tölvupósti. Þrettán hús í fyrsta áfanga Stærsti eigandi Arctic Circle Hotels er Pálmar Harðarson í gegnum félögin Þingvang og Búa eignafélag. Verktakafyrirtækið Þingvangur sér um framkvæmdirnar við Skaftafell. Pálmar segir að þrettán hús verði byggð núna en þau eiga að vera tilbúin á vormánuðum. Engin ákvörðun hafi enn verið tekin um frekari uppbyggingu sem heimild er fyrir. „Það fer eftir hvernig viðtökunar verða hvað það gerist á löngum tíma,“ segir hann við Vísi. Keyptu Fjaðrárgljúfur í fyrra Næststærsti eigandinn er Numinous hs., sérhæfður fjárfestingasjóður hjá Kviku banka, í gegnum ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures. Arctic Adventures festi kaup á Fjaðrárgljúfri í fyrra. Félagið á einnig og rekur aðra ferðamannastaði eins og Kerið, Into the Glacier, Raufarhólshelli og Hvalasafnið ásamt hótel og gististaði og ferðabílaleiguna Happy Campers.
Vatnajökulsþjóðgarður Umhverfismál Skipulag Sveitarfélagið Hornafjörður Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Innlent Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Erlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Innlent Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Innlent Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Innlent Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Innlent Fleiri fréttir Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Sjá meira