Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2025 23:18 Sigvaldi Guðjónsson er fyrirliði Kolstad sem þarf að ráðast í niðurskurð. getty/Ruben De La Rosa Þeir leikmenn sem eru með hæstu launin hjá norska handboltaliðinu Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun. Þrír Íslendingar leika með Kolstad.
Sigvaldi Guðjónsson er fyrirliði Kolstad og samkvæmt TV 2 í Noregi er hann einn þeirra sem þurfa að taka á sig launalækkun. Hinir eru Andreas Palicka, Gøran Johannessen, Magnus Gullerud og Simen Lyse. Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson leika einnig með Kolstad sem hefur lagt mikið í sölurnar síðustu ár til að koma sér í fremstu röð í Evrópu. Kolstad varð Noregsmeistari 2023 og 2024 og bikarmeistari 2022, 2023 og 2024 en árangurinn í Meistaradeild Evrópu hefur látið á sér standa. Þá hefur Kolstad átt í fjárhagsvandræðum og skærustu stjörnur liðsins hafa áður þurft að taka á sig launalækkun. Þá hafa sterkir leikmenn á borð við Janus Daða Smárason, Magnus Rød, Torbjørn Bergerud og Sander Sagosen yfirgefið Kolstad á síðustu árum. Í samtali við TV 2 vildi framkvæmdastjóri Kolstad, Jostein Sivertsen, ekki fara nákvæmlega út í hvers eðlis niðurskurðurinn hjá félaginu yrði en sagði að unnið væri að nýrri íþróttastefnu hjá því. Kolstad yrði ekki bara að vera samkeppnishæft inni á vellinum heldur einnig fjárhagslega sjálfbært.
Norski handboltinn Mest lesið „Endanlegt ippon fyrir Slot“ Enski boltinn Komst ekki í landsleik af því að konan treysti sér ekki til að halda afmæli ein Fótbolti Aðeins of mikið af því góða fyrir Gumma Ben og félaga Fótbolti Viktor Bjarki byrjaði í dramatískum sigri í Meistaradeildinni Fótbolti Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Enski boltinn Ofsótt af milljarðamæringi Enski boltinn Þrír sem Jökull þolir ekki: „Hann er algjört gerpi“ Enski boltinn Ráðleggur leikmanni United að hætta sóa tíma sínum þar Enski boltinn Dagur til Kanada „aðeins eldri með barn, hund og vini fyrir lífstíð“ Fótbolti Sjáðu vítadóminn sem bjargaði Liverpool og mörk úr Meistaradeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar „Þessi hópur getur orðið mjög góður en hann þarf tíma til að læra“ „Æðisleg tilfinning að sjá boltann í markinu“ „Sérstaklega sætt að vinna Færeyjar“ Færeyjar - Ísland 30-33 | Kveðja HM með góðum sigri 13 mörk Andra dugðu skammt gegn frábærum Hauki Svartfjallaland fylgir frábærum Þjóðverjum áfram Eiður í stuði í stórsigri Fæddi barn í september og gæti mætt Íslandi á HM í kvöld „Ég hætti að stækka þegar ég var þrettán ára“ Kærkomin pizza eftir endalaust hakk og spagettí á hótelinu „Bara súrrealískt og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Norsku stelpurnar halda áfram að rúlla þessu HM upp Valsmenn með flotta endurkomu í Kaplakrika Gott kvöld fyrir Viðarson-bræðurna úr Eyjum Arnór með stórleik í sænska handboltanum Eyjamenn með tvo sigra í röð í fyrsta sinn síðan í október Elín Klara kemur til greina sem besti ungi leikmaðurinn á HM Sjá meira