Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. desember 2025 10:03 Michelle og Barack Obama voru góðir vinir Reiner-hjónanna. Getty Forsetahjónin fyrrverandi Barack og Michelle Obama ætluðu að hitta Rob og Michele Reiner daginn sem þau voru drepin. Michelle segir hjónin hvorki hafa verið trufluðu né klikkuð heldur ástríðufullt og hugrakkt fólk.
Michelle Obama, forsetafrúin fyrrverandi, greindi frá þessu í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live á mánudag. „Við áttum að hitta þau um kvöldið - í gærkvöldi,“ sagði Michelle um hittinginn sem aldrei varð. Hún útskýrði þó ekki hvert tilefnið hefði verið. Reiner-hjónin voru gestir í jólapartýi Conan O'Brien á sunnudagskvöldi ásamt syni sínum, Nick Reiner, sem er sagður hafa rifist við föður sinn í partýinu. Um þrjúleytið síðdegis daginn eftir fundust þau hjónin látin á heimili sínu og seinna um kvöldið, þegar þau hefðu átt að vera að hitta Obama-hjónin, var sonur þeirra handtekinn grunaður um morðið. Michelle brást einnig við samfélagsmiðlafærslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sagði Rob Reiner hafa verið „truflaðan“ og með sig á heilanum. „Leyf mér bara að segja eitt: ólíkt sumu fólki voru Rob og Michele Reiner með því almennilegasta og hugrakkasta fólki sem þú myndir nokkurn tímann kynnast. Þau voru ekki trufluð eða klikkuð,“ sagði hún. „Þau voru ástríðufullt fólk, á tímum þar sem hugrekki er af skornum skamti, sem var tilbúið að hrinda hlutum í framkvæmd fyrir það sem þeim þótti annt um. Og þeim var annt um fjölskyldu sína. Og þeim var annt um þetta land. Og þeim var annt um réttsýni og réttlæti. Það er sannleikurinn,“ sagði Michelle jafnframt.
Bandaríkin Hollywood Erlend sakamál Morðin á Rob og Michele Reiner Barack Obama Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Fleiri fréttir Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum Sjá meira