Ragnar Þór verður ráðherra Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 8. janúar 2026 18:57 Ragnar Þór sest í ráðherrastól Ingu, sem sest í stól Guðmundar Inga, sem sagði af sér í kvöld. Samsett mynd Inga Sæland formaður Flokks fólksins tekur við af Guðmundi Inga Kristinssyni sem mennta- og barnamálaráðherra eftir afsögn Guðmundar. Þá verður Ragnar Þór Ingólfsson þingflokksformaður Flokks fólksins félags- og húsnæðismálaráðherra.
Inga greinir frá þessu á Facebook. Guðmundur Ingi greindi frá því á sjöunda tímanum að hann segði af sér sem mennta- og barnamálaráðherra vegna veikinda. Guðmundur Ingi snýr aftur á Alþingi eftir að veikindaleyfi hans lýkur. „Minn góði vinur og baráttujaxl Guðmundur Ingi Kristinsson hefur nú sagt af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra af heilsufarsástæðum. Hann gekkst undir stóra opna hjartaaðgerð seint í desember og þarf tíma til að jafna sig og ná fullum kröftum. Ég óska honum alls hins besta og hlakka til að fá hann aftur til þingstarfa þegar þar að kemur,“ segir Inga í færslunni. Hún segist hafa ákveðið að taka við embætti mennta- og barnamálaráðherra. „Flokkur fólksins var beinlínis stofnaður á sínum tíma til bæta kjör barna sem búa við fátækt. Fjölmargar áskoranir bíða úrlausna í ráðuneytinu hvað varðar grunnskólann, börn með fjölþættan vanda og svo framvegis. Þessi mál eru meðal helstu áherslumála ríkisstjórnarinnar.“ Þá greinir hún frá því að Ragnar Þór taki við af sér í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. „Hann hefur meðal annars farið fyrir húsnæðishópi ríkisstjórnarinnar og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu á húsnæðis-, vinnumarkaðs- og félagsmálum,“ skrifar Inga. Fréttin hefur verið uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Alþingi Skóla- og menntamál Félagsmál Húsnæðismál Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira