Rannsaka nú og skoða ákærur gegn seðlabankastjóranum Samúel Karl Ólason skrifar 12. janúar 2026 09:52 Donald Trump og Jerome Powell, þegar Trump kynnti sér framkvæmdir á húsnæði Seðlaankans síðsta sumar. AP/Julia Demaree Nikhinson Bandarískir alríkissaksóknarar hafa myndað ákærudómstól sem ætlað er að rannsaka Jerome Powell, seðlabankastjóra, og mögulega ákæra hann. Rannsóknin tengist vitnisburði hans á þingfundi þar sem hann var spurður út í endurbætur á húsnæði seðlabankans.
Bankastjórinn birti í gær fordæmalausa yfirlýsingu á myndbandi þar sem hann sagði frá rannsókninni. Þar kallaði hann rannsóknina fyrirslátt og hluta af herferð Donalds Trump, forseta, til að þvinga Seðlabankann til að lækka stýrivexti og grafa undan sjálfstæði hans. Powell segir hótanir ríkisstjórnarinnar ekki snúast um vitnisburð hans á fundi bankanefndar öldungadeildarinnar í júní, eða áðurnefndar endurbætur, sem Trump hefur ítrekað talað um með þeim hætti að þær kosti allt of mikið og sagt vera einhvers konar svindl. Trump hefur ítrekað sagt að Powell ætti að hætta og sagst ætla að reka hann, þó Trump hafi sjálfur skipað hann á sínum tíma og hafi ekki völd til að víkja honum úr embætti fyrr en skipunartíma hans lýkur hinn 15. maí. Seðlabankinn á að njóta sjálfstæðis frá ríkisstjórn Bandaríkjanna, þó bæði bankastjóri og stjórn hans séu tilnefnd af forseta og þær staðfestar af öldungadeildinni. „Almannaþjónusta felur stundum í sér þörf á að standa í lappirnar gegn ógnunum. Ég mun halda áfram að vinna vinnuna sem öldungadeildin veitti mér, af heillindum og ábyrgð til að þjóna bandarísku þjóðinni,“ sagði Powell. Trump sagðist í gærkvöldi ekki vita af rannsókninni og hélt því fram að hún tengdist ekkert illdeilum hans við Powell, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Í svari við fyrirspurn WSJ segir Pam Bondi, dómsmálaráðherra, að hún vilji ekki tjá sig um þetta tiltekna mál að öðru leyti en að hún hafi gefið saksóknurum sínum almennar skipanir um að leggja meiri áherslu á að rannsaka misnotkun á opinberu fé. Ítrekað harðorður í garð Powells Trump tilnefndi Powell til starfsins í nóvember 2017. Hann var svo ráðinn aftur af Joe Biden en frá því hann tók aftur við embætti og jafnvel fyrr hefur Trump ítrekað gagnrýnt Powell harðlega. Forsetinn hefur margsinnis krafist þess að Powell lækki stýrivexti og brugðist reiður við þegar Seðlabankinn hefur ekki gert það. Sjá einnig: Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Forsetar Bandaríkjanna hafa í gegnum árin kvartað þegar þeim finnst rangt haldið á spöðunum innan seðlabankans þegar kemur að stýrivöxtum. Trump hefur þó gengið lengra en nokkur annar forseti í nútímanum. Fjárfestar á Wall Street eru sagðir hafa áhyggjur af því að óstöðugleiki verði meiri í vor, þegar Trump skipar nýjan mann í starfið. Hver það á að vera liggur ekki fyrir að svo stöddu. Ákærudómstólar eru sérstakt bandarískt fyrirbæri þar sem almennir kviðdómendur eru fengnir til að fara yfir sönnunargögn yfirvalda í tilteknum málum og segja til um hvort þeim þyki tilefni til að leggja fram formlegar ákærur.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira