Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2026 16:44 Trump á leið um borð í Air Force One í gær þar sem hann lét ummælin falla. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump Bandaríkjaforseti „hallast að því“ að útiloka bandaríska olíufyrirtækið ExxonMobil frá starfsemi í Venesúela. Hann greindi frá þessu í gær eftir að forstjóri fyrirtækisins lýsti yfir efasemdum um arðvænleika fjárfestinga í landinu eftir að Nicolás Maduro forseta var steypt af stóli.
Það að fá bandarísk og evrópsk olíufélög til að fjárfesta í Venesúela fyrir minnst hundrað milljarða bandaríkjadala hefur verið forgangsverkefni Bandaríkjastjórnar eftir handtöku Maduro. ExxonMobil er stærsta olíu- og gasfyrirtæki Bandaríkjanna. „Mér líkaði ekki viðbrögð Exxon,“ sagði Trump við blaðamenn um borð í forsetaþotunni Air Force One rétt fyrir brottför frá West Palm Beach í Flórída í gær. „Þeir eru að spila þetta of krúttlega.“ Darren Woods, forstjóri ExxonMobil, á fundinum með Trump á föstudag. AP/Evan Vucci AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Á fundi með stjórnendum olíufyrirtækja á föstudag gerði Trump lítið úr áhyggjum af þeirri áhættu sem fylgi fjárfestingum í Venesúela. Sum fyrirtækin sem Bandaríkjastjórn hvetur nú til að fjárfesta í olíuvinnslu þar í landi hafa áður horft upp á stjórnvöld í Venesúela þjóðnýta eignir þeirra. Þeirra á meðal er ExxonMobil en forstjóri þess lýsti því að lagabreytingar og fjárfestingavernd þyrfti ef Exxon ætti að hefja aftur starfsemi í landinu, að því er fram kemur í frétt New York Times. Sagði Venesúela ekki hæft til fjárfestinga Fullyrti Trump á föstudag að fyrirtækin myndu eiga í beinum samskiptum við bandarísk yfirvöld frekar en við stjórnvöld í Venesúela. Þá sýndi hann því ekki áhuga að hjálpa Exxon að ná til baka þeim fjármunum sem fyrirtækið tapaði við þjóðnýtinguna fyrir um tveimur áratugum. Þrátt fyrir tilraunir Trumps til að sefa áhyggjur olíustjórnendanna voru þeir ekki allir sannfærðir. „Ef við lítum á þann ramma sem gildir um viðskipti í Venesúela í dag, þá er það ófjárfestingarhæft í dag,“ sagði Darren Woods, forstjóri ExxonMobil. Bandaríkjastjórn vill stýra sölu á olíu Stjórnvöld í Venesúela hafa tekið yfir eignir einkafyrirtækja í gegnum tíðina líkt og áður segir. Þá hefur landið þurft að þola langvarandi pólitískan óstöðugleika og viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. AP-fréttaveitan greinir frá því að á föstudag undirritaði Trump tilskipun sem miðar að því að tryggja að áfram verði ekki hægt að nýta olíutekjur frá Venesúela í dómsmálum. Í tilskipuninni, sem birt var á laugardag, segir að ef fjármunir yrðu gerðir upptækir fyrir slíka notkun gæti það „grafið undan mikilvægri viðleitni Bandaríkjanna til að tryggja efnahagslegan og pólitískan stöðugleika í Venesúela.“ Hvíta húsið hefur lýst því yfir að Bandaríkjastjórn vilji hafa ítök í efnahagslífi Venesúela eftir valdaskiptin en hún hefur á síðustu mánuðum tekið yfir fjölda skipa sem flytja olíu frá Venesúela. Nú hafa stjórnvöld gefið út að Bandaríkin muni taka yfir sölu á þrjátíu til fimmtíu milljónum tunna af hráolíu sem féllu áður undir refsiaðgerðir og hyggist stjórna sölu á henni um allan heim um óákveðinn tíma.
Venesúela Bandaríkin Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Donald Trump Tengdar fréttir Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Bandarískir hermenn tóku í morgun yfir stjórn olíuflutningaskipsins Olina á Karíbahafinu. Skipið er sagt bera olíu frá Venesúela og mun því hafa verið siglt undir fölsku flaggi. Þetta er fimmta skipið tengt Venesúela sem Bandaríkjamenn taka yfir á nokkrum vikum. 9. janúar 2026 14:16 Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn hans hafa talað fyrir því að stjórnvöld í Venesúela verði friðsamir vinir Bandaríkjanna. Einn maður þykir líklegastur til að geta komið í veg fyrir að það raungerist. Sá maður heitir Diosdado Cabello. 8. janúar 2026 10:30 Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Sjá meira
Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Bandarískir hermenn tóku í morgun yfir stjórn olíuflutningaskipsins Olina á Karíbahafinu. Skipið er sagt bera olíu frá Venesúela og mun því hafa verið siglt undir fölsku flaggi. Þetta er fimmta skipið tengt Venesúela sem Bandaríkjamenn taka yfir á nokkrum vikum. 9. janúar 2026 14:16
Trump-liðar hóta fauta Maduros sömu örlögum eða dauða Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og embættismenn hans hafa talað fyrir því að stjórnvöld í Venesúela verði friðsamir vinir Bandaríkjanna. Einn maður þykir líklegastur til að geta komið í veg fyrir að það raungerist. Sá maður heitir Diosdado Cabello. 8. janúar 2026 10:30