Kastaði stól í leikmann og er á leið í fangelsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2026 12:31 Jack MacKenzie sést hér eftr að hafa fengið stólinn í höfuðið. Getty/Paul Devlin Maður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi eftir að hafa kastað hluta úr stól í þáverandi leikmann Aberdeen, Jack MacKenzie, á síðasta ári.
Atvikið átti sér stað í maí eftir að Aberdeen hafði tapað fyrir Dundee United á útivelli. Stuðningsmenn Dundee ruddust þá inn á völlinn í sigurvímu yfir því að félagið hafði tryggt sér fjórða sætið í deildinni og þar með þátttökurétt í Evrópukeppni á þessu tímabili. MacKenzie, sem hafði setið á varamannabekknum allan leikinn, gekk eftir leikinn að stuðningsmönnum Aberdeen til að þakka þeim fyrir komuna. Sky Sports segir frá. Man who struck and disfigured footballer after throwing seat at game jailed Read more 🔗 https://t.co/VUQfnuwdwA— Sky News (@SkyNews) January 12, 2026 Þar varð hann fyrir hluta úr stól sem kastað var úr stúkunni. Stóllinn lenti í höfði hans og olli honum alvarlegum meiðslum. Hinn 25 ára gamli leikmaður hlaut djúpan skurð á vinstri augabrún og sár undir auganu. Stuðningsmaðurinn, sem var hluti af „ultras“-hópi Aberdeen, játaði sök fyrir dómi í október. Á sama tíma ávítti dómarinn hann. „Þú hlýtur að hafa vitað að þú gætir hitt einhvern með því að kasta þessu. Ef þú gerðir það ekki er gáleysið með ólíkindum,“ sagði dómarinn. Nú hefur hann hlotið átján mánaða fangelsisdóm. Hann fær heldur ekki að horfa á neina fótboltaleiki úr stúkunni næstu tíu árin. Fyrir er hann kominn í lífstíðarbann hjá Aberdeen. Maðurinn var ölvaður þegar atvikið átti sér stað, að sögn lögmanns hans fyrir dómi. MacKenzie spilar nú með Plymouth á Englandi. Football Player, Jack MacKenzie, Hospitalized After Being Hit With An Object Thrown From The Stands After The Game.Repost to Keep Him in Your Prayers 🙏 pic.twitter.com/kn0FI83WSc— 🧠🥶 (@brainfreeze) January 12, 2026
Skoski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Náði að plata Óskar Örn Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Serena Williams snéri aftur og lék með Alcaraz Sprungið dekk í Þakgili eyðilagði úrslitaleik HM Dagný orðin sendiherra West Ham Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Sjá meira