Kallar stjörnur Real Madrid „dekraða krakka“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 11:32 Khabib Nurmagomedov var heimsmeistari i sinni íþrótt og veit hvað þarf til þess að vinna. Vinícius Júnior stóð í deilum við Xabi Alonso fyrir opnum tjöldum. Getty/Mike Roach/Ricardo Nogueira Bardagakappinn Khabib Nurmagomedov er líka mikill fótboltaáhugamaður og hann hefur blandað sér inn í umræðuna um óvænt endalok spænska þjálfarans Xabi Alonso hjá Real Madrid.
Nurmagomedov hefur lýst yfir stuðningi við Xabi Alonso og kallað leikmennina „dekraða krakka“ eftir brottför þjálfarans frá Real Madrid. „Hollusta er ekki til. Fyrir einu ári grátbáðu þeir hann um að koma en núna ráku þeir hann út af dekruðum krökkum. Xabi, þú ert bestur,“ skrifaði Khabib. Hann bætti einnig við og hélt áfram að lofa þjálfarann. Einn af þeim þremur bestu „Ég tel að Alonso sé einn af þremur bestu þjálfurum okkar tíma. Ef þetta lið nær ekki árangri með hann þá ættu þeir að skipta um leikmenn, ekki þjálfara. Ég er alveg viss um að það er enginn þjálfari sem getur stjórnað svona liði hjá Real Madrid. Við þurfum að losna við óstöðugu leikmennina,“ skrifaði Khabib. „Hvort sem þú kemur í ræktina eða á völlinn, þá skiptir ekki máli hvort þeir eru bardagamenn eða ekki. Sem aðalþjálfari berð þú ábyrgð. En ef andrúmsloftið innan liðsins þíns leyfir ekki öllum að fylgja fyrirmælum þínum, þá ertu örugglega ekki á réttri leið,“ skrifaði Khabib. Khabib Nurmagomedov veit vel hvað það er að vera sigurvegari. Hann er rússneskur fyrrverandi atvinnumaður í blönduðum bardagaíþróttum sem keppti í léttvigtarflokki hjá UFC. Hann var sá léttvigtarmeistari UFC sem hefur haldið heimsmeistaratitlinum lengst, eða frá apríl 2018 til mars 2021. Hann lagði hanskana á hilluna með 29 sigra og ekkert tap og er því ósigraður á ferlinum. Nurmagomedov er almennt talinn einn af bestu bardagaíþróttamönnum allra tíma og var tekinn inn í frægðarhöll UFC þann 30. júní 2022. View this post on Instagram A post shared by Soccer Forever (@soccerforever)
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira