Magnea vill hækka sig um sæti Agnar Már Másson skrifar 22. janúar 2026 19:25 Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi. Vísir/Einar Magnea Gná Jóhannsdóttir borgarfulltrúi gefur kost á sér í annað sæti á lista Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí.
Magnea, sem skipaði 3. sæti listans í síðustu sveitarstjórnarkosningum, greinir frá þessu í framboðstilkynningu og segist þar bjóða sig fram af einlægum vilja til að leggja sitt af mörkum til að byggja upp borg sem þjóni íbúum sínum af hlýju, ábyrgð og virðingu. Að svo stöddu hefur hún ein opinberlega bo[i[ sig fram í 2. sæti listans. Kosið verður um efstu fjögur sætin á lista Framsóknar til borgarstjórnar á kjördæmaþingi Framsóknar í Reykjavík þann 7. febrúar. „Ég vil að Reykjavík sé aðlaðandi staður bæði til búsetu og athafna. Unga fólkið okkar á að sjá tækifærin í því að búa í borginni. Þess vegna legg ég ríka áherslu á uppbyggingu innviða þannig að grunnþjónusta sé aðgengileg innan hverfa,“ segir Magnea í framboðstilkynningunni. Hún segir að grípa þurfi fyrr inn í vanda barna með snemmtækri íhlutun, styrkja skóla- og frístundastarf, efla íslenskukennslu barna af erlendum uppruna og tryggja að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku í íþrótta- og frístundastarfi. „Mikil fólksfjölgun kallar á öfluga og skynsama húsnæðisstefnu. Auka þarf framboð á hagkvæmu og fjölbreyttu húsnæði, sérstaklega fyrir ungt fólk og þau sem vilja minnka við sig. Uppbygging þarf að taka mið af ólíkum þörfum fólks á mismunandi æviskeiðum lífsins, með birtu, grænum svæðum og lífsgæði íbúa í forgrunni,“ skrifar hún meðal annars. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík mun velja fólk á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum á tvöföldu kjördæmisþingi. Enn sem komið er hefur Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og fyrrverandi borgarstjóri, einn lýst því yfir að hann gefi kost á sér til að leiða lista flokksins áfram í borginni.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira