Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Smári Jökull Jónsson skrifar 26. janúar 2026 19:03 Kynferðisbrotum fjölgaði á milli ára. Vísir/Ívar Fannar Tilkynningum um barnaníð fjölgaði umtalsvert á síðasta ári samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra. Yfirmaður kynferðisbrotadeildar segir óvenjumörg stór mál hafa komið upp síðustu mánuði og segir að gagnrýni vegna seinagangs rannsókna á sínum tíma hafi verið réttmæt.
Samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra fjölgaði tilkynningum um kynferðisbrot á milli ára og voru alls 629 talsins á síðasta ári. Tilkynnt var um 51 barnaníðsbrot, það mesta á síðustu fimmtán árum og nemur fjölgunin 53% ef miðað er við meðaltal síðustu þriggja ára. Alls var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum á síðasta ári en slík mál fara ávallt í forgang hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar. Tilkynningum um kynferðisbrot fjölgaði umtalsvert frá því á síðasta ári.Vísir Af hverju heldur þú að það sé búið að vera mikið um þessi mál síðustu mánuði? „Samfélagið er orðið miklu opnara að ræða þessi mál almennt og fólk er orðið meðvitaðra um að það er hægt að fylgja þeim eftir með því að leita til lögreglu. Um leið og eitthvað fer af stað í fjölmiðlum og til umræðu í samfélaginu þá eykur það að fólk komi fram ef eitthvað hefur komið fyrir það,“ sagði Bylgja Hrönn Baldursdóttir yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Segir gagnrýni hafa átt rétt á sér Síðustu mánuði hafa komið upp fjögur alvarleg kynferðisbrot gagnvart börnum sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Bylgja segist ekki vön því að svona mörg mál komi upp á skömmum tíma. „Ekki svona mikið af stórum og miklum málum. Það gefur auga leið að þegar kemur inn svona stórt mál að það hægir það á ferlinu á öllum hinum málunum. Við verðum eiginlega bara að biðla til fólks að sýna skilning hvað það varðar.“ Óvenju mörg stór kynferðisbrotamál gagnvart börnum hafa komið upp á síðustu mánuðum.Vísir Kynferðisbrotadeildin er með um 150 mál í rannsókn sem stendur en hún fékk gagnrýni á sínum tíma vegna seinagangs rannsókna. Bylgja segir málshraða hafa aukist eftir að breytingar voru gerðar á innflæði mála til deildarinnar. „Það var gagnrýni sem átti rétt á sér. Við vorum lengi með mörg mál en sem betur fer get ég sagt frá að við höfum breytt verkferlum hjá okkur.“ Erfið mál fyrir starfsfólk lögreglunnar Þegar upp koma mál sem tengjast börnum aðstoða utanaðkomandi aðilar við rannsókn málsins. „Það er skilyrði að barnavernd sé meðvituð um skýrslutökur og viðstödd. Skýrslur sem eru teknar af börnum ef börn eru brotaþolar þá fara þau fram í Barnahúsi með aðstoð sérfræðinga þaðan.“ Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgaði á milli ára og fjöldi barnaníðsmála var sá mesti í áraraðir.Vísir Slík mál séu sérstaklega vandmeðfarin og málin hafi áhrif á þá sem að þeim koma. „Auðvitað er þetta erfitt fyrir starfsfólk því flestir á minni deild eru með börn á leikskólaaldri, jafnvel á leik- og grunnskólaaldri. Þeir sem eiga ekki börn á þeim aldri eiga sumir barnabörn. Auðvitað hefur þetta áhrif á okkur öll. Við erum með úrræði, getum leitað til sálfræðings ef á þarf að halda og ráðleggjum fólkinu okkar að gera það ef þess þarf,“ segir Bylgja. „Þetta hefur gríðarleg áhrif á alla, hvort sem þaðr eru börnin, foreldrar barnanna, nánustu ættingjar eða við hin úti í samfélaginu. Það finna allir til með börnum.“ Bylgja segir nauðsynlegt að almenningur sé upplýstur um hvaða úrræði séu til staðar. „Það mætti alveg vera meira um að fólk gæti sótt sér upplýsingar á auðveldari hátt. Á 112.is er fullt af upplýsingum og þar er hægt að skoða þessa flokka og fá svör. Ég held að fólk viti ekki endilega hvar það á að sækja þessar upplýsingar. Við erum komin með samfélagslöggæslu á höfuðborgarsvæðinu og á landsvísu. Þá er greiðari aðgangur fyrir lögreglu að gefa þessar upplýsingar í staðinn fyrir að maður standi úti á horni og enginn hlustar á mann.“
Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Lögreglumál Tengdar fréttir Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56 Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum. 22. janúar 2026 19:41 Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Þakplötur og trampólín á flugi Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Fleiri fréttir Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð viðkvæm Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Þakplötur og trampólín á flugi Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Borgarverk með lægsta boð í Þjórsárbrú og Búðafossveg Meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns til ákæranda Sjöfalt fleiri útköll en sami fjöldi sérsveitarmanna Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Segja upp tveimur sérfræðingum Stíflueyðir og gólfþrif ollu slysinu á Óseyri Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Sjá meira
Játaði meira og meira eftir því sem á leið Framburður manns sem ákærður er fyrir kynferðisbrot gegn barni sem hann mun hafa framið meðan hann starfaði á leikskólanum Múlaborg í Reykjavík þótti að mati lögreglu samræmast frásögn barnsins af meintum brotum hans. Maðurinn játaði í skýrslutökum hjá lögreglu að hafa brotið tvívegis á barninu. 23. janúar 2026 09:56
Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum. 22. janúar 2026 19:41