Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. janúar 2026 11:40 Markmiðið með aðgerðinni er að mæta hækkandi matvöruverði sem hafi reynst erfitt fyrir budduna á mörgum heimilum landsins. EPA/Bo Amstrup Dönsk stjórnvöld hafa komist að samkomulagi um beinan peningastyrk til barnafjölskyldna, lífeyrisþega, bótaþega og námsmanna sem ætlað er að mæta hækkandi matvöruverði í landinu. Um er að ræða skattfrjálsa einskiptisgreiðslu, svokallaðan „matartékka“, sem nemur tæpum 50 þúsund íslenskum krónum til einstaklinga sem uppfylla skilyrði til greiðslunnar, en tæpar 20 þúsund krónur til námsmanna. Þá standa yfir viðræður milli stjórnmálaflokka um lækkun virðisaukaskatts á matvöru.
Það eru ríkisstjórnarflokkarnir þrír ásamt tveimur vinstriflokkum í stjórnarandstöðu sem standa að matartékkanum sem fulltrúar flokkanna kynntu á blaðamannafundi nú í morgun. Barnafjölskyldur geta átt rétt á hundrað þúsund kalli Greiðslan mun nema 2.500 dönskum krónum, eða sem jafngildir tæpum 49.000 íslenskum krónum miðað við gengið í dag. Samkvæmt umfjöllun TV 2 er gert ráð fyrir að yfir tvær milljónir Dana geti átt rétt til greiðslunnar, eða um þriðjungur þjóðarinnar þar sem íbúar landsins eru um sex milljónir. Þar á meðal eru foreldrar sem þéna innan við sem nemur 814 þúsund íslenskum krónum á mánuði, óháð tekjum maka. Alls geta barnafjölskyldur fengið tæpar 100 þúsund krónur í beina greiðslu frá ríkinu ef heildartekjur hvors foreldris á ári nema innan við 9,7 milljónum, séu viðmiðunartekjur gróflega umreiknaðar í íslenskar krónur. Þá er gert ráð fyrir að um sex þúsund barnafjölskyldur í sérstökum aðstæðum fái enn hærri styrk, upp á annaðhvort tæpar 150 eða 200 þúsund krónur íslenskar. Ákveðinn hópur námsmanna fær líka greiðslu, en þó ekki eins mikið og aðrir hópar sem eiga rétt á tékkanum.EPA/Bo Amstrup Fimm flokkar sammála um aðgerðina Ellilífeyrisþegar og aðrir bótaþegar hjá ríkinu eiga einnig rétt á greiðslu upp á 2.500 danskar krónur, en námsmenn sem ekki búa í foreldrahúsum og fá SU-námsstyrk frá ríkinu fá 1.000 danskar, eða um 19.500 íslenskar. Gert er ráð fyrir að matartékkinn verði greiddur út í maí og í júní og að heildarkostnaður vegna hans muni nema um 4,5 dönskum milljörðum, sem nemur um 88 milljörðum íslenskra króna. Markmiðið með aðgerðinni er að mæta hækkun matvöruverðs í Danmörku, sem hafi komið illa við fólk og fjölskyldur sem hafi minna á milli handanna. Auk ríkisstjórnarflokkanna, Sósíaldemókrata, Moderaterne og Venstre, eiga vinstri flokkarnir Enhedslisten og SF einnig aðild að samkomulaginu. Þá standa yfir viðræður á milli stjórnmálaflokka á danska þinginu um mögulega lækkun virðisaukaskatts á matvörur.
Danmörk Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira