Hvert stefnum við? Jasmina Vajzović skrifar 29. janúar 2026 14:47 Íslenskt samfélag hefur lengi byggt sjálfsmynd sína á réttlætiskennd, jafnræði og mannúð. En undanfarin ár hefur orðið áberandi gliðnun í þessum grunngildum. Umræða um flóttafólk og innflytjendur hefur harðnað, vantraust gagnvart opinberum stofnunum hefur dýpkað og siðferðileg ábyrgð virðist hafa orðið valfrjáls. Þetta eru ekki stök atvik heldur kerfisbundin þróun. Fyrirlitning á flóttafólki og innflytjendum er ekki lengur bundin við jaðarhljóma – hún er orðin að „viðurkenndri“ skoðun í almennri umræðu. En skoðanir sem afmennska fólk eru ekki saklausar. Þær hafa afleiðingar. Í könnun Maskínu árið 2024 töldu 34% Íslendinga að innflytjendur væru „of margir“. Engar staðreyndir styðja þá trú. Hagstofan og OECD sýna að innflytjendur leggja meira fjárhagslegt og félagslegt framlag en kostnað og eru lykilþátttakendur í velferðarkerfi sem nú treystir á innflytt vinnuafl. Samt hefur orðræða um innflytjendur og flóttafólk orðið að pólitísku verkfæri sem réttlætir útilokun. Þegar fólk er nefnt „álag“, „kostnaður“, „öryggismál“ eða „ógn“ hættir það að vera manneskja í augum annarra. Þetta er klassískt mynstur úr félagsfræði fordóma: afmennskun er fyrsta skrefið í að réttlæta mismunun. Á sama tíma heyrum við sífellt frasana: „Ég má hafa mína skoðun.“ Það er rétt, en skoðun sem byggir á því að draga úr rétti annarra til virðingar, öryggis eða tilveru er ekki lengur persónuleg skoðun. Hún er samfélagsleg aðgerð. Þegar einstaklingur notar „skoðun“ til að réttlæta að sumir séu minna virði en aðrir, hættir umræða að vera saklaus. Hún verður að pólitískri hreyfingu sem normalíserar mismunun. Skoðun er frjáls. Afleiðingar hennar eru það ekki. Það er líka mikilvægt að nefna það sem margir forðast: Að geta haft skaðlegar skoðanir án þess að bera afleiðingar er forréttindi. Sá sem hefur aldrei þurft að sanna rétt sinn til að tilheyra samfélagi sér ekki hversu djúpt skaðlegt það er að gera manneskjur að „vandamáli“. Þetta er ekki tilfinningamál. Þetta er staðfest í rannsóknum WHO og OECD á líðan innflytjenda: kerfisbundin vanvirðing hefur bein áhrif á heilsu, menntun, atvinnuþátttöku og félagslega þátttöku. Fordómar búa til kostnað. Virðing býr til samfélag. Samt erum við komin lengra en orð. Þetta er ekki lengur bara viðhorf heldur stefnumótun sem við framfylgjum með lögum. Í nýju frumvarpi stjórnvalda um móttöku fólks á flótta er horfið frá hugmyndinni um vernd og mannlega reisn yfir í kerfi sem speglar fangageymslu. Í texta frumvarpsins kemur orðið „fangaverðir“ fyrir tugum sinnum. Fólk á flótta, þar með börn, sem hefur ekkert brotið af sér, er sett í vistun sem líkist fangabúðum að formi og hugmyndafræði.Í umræðuni á Alþingi það var enginn sem stóð upp og mótmælti því. Enginn spurði hvað það þýðir fyrir mannréttindi. Enginn sagði einfaldlega: „Þetta er rangt.“ Þeir sem hafa flaggað mannréttindum sem sínum gildum eru nú orðnir tilbúnir að afnema þau - nema þegar réttindin nýtast þeim sjálfum. Á sama tíma hefur vantraust á Alþingi og embættisvaldi aukist hratt. Samkvæmt Eurobarometer 2023 treystir aðeins lítill hluti landsmanna stjórnmálum og löggæslu. Í stað þess að verða til kröfur um meiri ábyrgð hefur almenningur hætt að trúa því að ábyrgð skipti máli. Þegar óhæfir einstaklingar halda áfram í embættum eða færast einfaldlega milli valdastöðu án afleiðinga, þá er skilaboðið skýrt: ábyrgð er ekki lengur krafa heldur valkostur. Það grefur undan lýðræðinu innan frá. Samfélag hrynur ekki á einum degi. Það smábrotnar þegar við hættum að sjá manneskjuna í náunganum, þegar við sættum okkur við vald sem ekki þarf að skýra sig og þegar fyrirlitning verður venjubundin. Þetta byrjar með orðræðu. Svo hegðun. Svo stefnumótun. Svo lögum. Sagan er full af viðvörunum. Þær eru ekki fjarlægar. Þær eru hér. Viljum við vera samfélag sem metur virði manneskju út frá uppruna eða gagnsemi? Eða samfélag sem áttar sig á að manneskja hefur virði vegna þess að hún er manneskja? Það er auðvelt að tala um gildi. Erfiðara að lifa þau. Orð og gjörðir þurfa að tala sama tungumálið. Það er þar sem gildi okkar koma í ljós. Þannig byggjum við traust – og þannig byggjum við sterkara samfélag og sterkara lýðræði. Hitt er bara lýðskrum og siðferðisleg gjalþrott. Höfundur er stjórnmálafræðingur, samfélagsrýnir og rödd þeirra sem byggja líf á nýjum stað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jasmina Vajzović Crnac Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun