Alcaraz yngstur til að klára alslemmuna í tennisnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2026 13:37 Carlos Alcaraz fagnar sigrinum á Novak Djokovic í úrslitaleik Opna ástralska meistaramótsins. Getty/Quinn Rooney Spánverjinn Carlos Alcaraz varð í dag yngsti maðurinn í sögunni til að vinna öll fjögur risamótin í tennisnum eftir að hann tryggði sér sigur á Opna ástralska meistaramótinu.
Alcaraz vann Serbann Novak Djokovic í úrslitaleiknum í fjórum settum en Djokovic hafði aldrei tapað í þeim tíu úrslitaleikjum sem hann hafði áður spilað á Opna ástralska í Melbourne Park. Alcaraz, sem er í efsta sæti heimslistans, tapaði fyrsta settinu á sunnudag þegar Djokovic byrjaði af krafti í leit sinni að sínum 25. risatitli, en hann náði að snúa leiknum sér í vil og vann leikinn 2-6, 6-2, 6-3, 7-5. View this post on Instagram A post shared by BBC SPORT (@bbcsport) Þessi 22 ára gamli Spánverji barðist fyrir hverjum bolta og náði skotum sem venjulega hefðu verið vinningshögg hjá Djokovic og hélt uppi stöðugri pressu á þennan 38 ára gamlan keppinaut sinn. Þegar sigurinn var í höfn, lét Alcaraz spaðann falla úr hendi sér og lagðist á bakið á völlinn með hendur fyrir höfði. Hann lá þar í nokkrar sekúndur áður en hann fór að netinu til að takast í hendur við Djokovic. Báðir leikmenn skiptust á nokkrum orðum og Djokovic brosti þegar hann óskaði Alcaraz til hamingju. Nýi meistarinn hljóp síðan til að faðma þjálfara sína við völlinn og síðar föður sinn og aðra liðsmenn í stúkunni. Leit Djokovic að fordæmalausum 25. risatitli í einliðaleik hefur nú verið stöðvuð af Alcaraz eða Jannik Sinner á níu risamótum og sá serbneski er ekkert að verða neitt yngri. Djokovic sigraði Sinner naumlega í undanúrslitum og stefndi að því að verða elsti maðurinn til að vinna risatitil á Opna tímabilinu, en tókst ekki að ná því gegn Alcaraz. Alcaraz, 22 ára og 272 daga gamall, er yngsti maðurinn til að vinna alla fjóra risatitlana í einliðaleik. Hann sló metið sem Don Budge setti á Opna franska meistaramótinu árið 1938, þegar hann var 22 ára og 363 daga gamall. Alcaraz hefur nú unnið sjö risatitla á ferlinum, þetta var sá fyrsti í Ástralíu ásamt tveimur á Wimbledon og tveimur á Opna franska og Opna bandaríska meistaramótinu. View this post on Instagram A post shared by Emilio Sansolini (@emiliosansolini)
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Sjá meira